6. Umhverfisstefna í innkaupum: Fyrstu skref

Hér að framan hefur verið lýst helstu aðferðum sem menn styðjast við varðandi umhverfisvæn innkaup. Hægt er að styðjast við þær upplýsingar þegar keypt er inn, án þess að setja sér skriflega innkaupastefnu þar sem tekið er tillit til umhverfisþátta. Mótun slíkrar stefnu kostar nokkra fyrirhöfn, en á móti kemur að framkvæmd innkaupanna verður mun auðveldari eftir að föstum vinnureglum og -ferlum hefur verið komið á. Mótun umhverfisstefnu samkvæmt vottuðum gæðakerfum (s.s. ISO 14.001 og EMAS) kostar mikla vinnu, sem fáir eru kannski reiðubúnir að stíga sem fyrsta skref til umbóta í umhverfismálum. Þau skref sem hægt er að taka í byrjun eru m.a. þessi:

 

1. Taktu fáa vöruflokka fyrir í senn

Flestar stofnanir og fyrirtæki kaupa inn tugi eða hundruð tegundir vöru og þjónustu. Varla er ástæða til þess að fara strax út í mikla vinnu til þess að skilgreina umhverfisþætti í þeim öllum. Þess í stað er best að einblína til að byrja með á fáa vöruflokka, sem mikið er keypt inn af eða hafa augljóslega mikil umhverfisáhrif - eða jafnvel eingöngu á þá vöruflokka þar sem leiðbeiningar um umhverfisvæn innkaup liggja fyrir (sbr. gátlista hér í viðauka og lista yfir vöruflokka sem bera norræna umhverfismerkið). Í almennum skrifstofurekstri er t.d. einfalt að hefjast handa við kaup á pappír og síðan húsgögnum, skrifstofuvélum, hreinlætisvörum o.fl. Þegar gerður hefur verið gátlisti fyrir innkaup á einni eða nokkrum vörutegundum er líka mun auðveldara að halda áfram og bæta fleiri flokkum inn í stefnuna.

 

2. Greindu þarfirnar

Nauðsynlegt er að greina þörfina áður en ráðist er í innkaup. Kannski er hægt að bæta úr henni án þess að kaupa yfirleitt inn nýja vöru, sem þýðir auðvitað lágmarks álag á umhverfið. Það skiptir litlu máli hve vara er „umhverfisvæn“ ef hún gegnir ekki vel því hlutverki sem henni er ætlað - þess vegna er gaumgæfileg þarfagreining lykilatriði í grænum innkaupum.

 

3. Hafðu samband við sérfræðinga

Á Íslandi er enn sem komið er lítil sérfræðiþekking á sviði umhverfisvænna innkaupa, en úr því mun væntanlega rætast smám saman á næstu árum. Hægt er að hafa samband við Hollustuvernd ríkisins til að fá upplýsingar um Norræna umhverfismerkið, hvaða vöruflokkar og vörutegundir bera merkið og hvaða skilyrði viðkomandi vara þarf að uppfylla. Þá eru birgjar í vaxandi mæli sér meðvitaðir um að þeir þurfa að geta svarað spurningum um umhverfismál og reitt fram greinargóðar upplýsingar um umhverfisþætti vörunnar og framleiðsluferilsins. Einnig er hægt að finna mikið af upplýsingum á netinu og eru nokkrar helstu upplýsingalindirnar að finna í Viðauka 3.

 

4. Notaðu vöruna rétt

Umhverfisstefnu í innkaupum lýkur ekki þegar varan er komin í hús. Það dregur úr gildi þess að kaupa umhverfismerktan og endurunninn pappír ef honum er síðan sóað að óþörfu, eða að kaupa sparneytna ljósaperu ef hún er látin loga að ástæðulausu á nóttunni.