Inngangsorš

Árið 1997 samþykkti ríkisstjórnin umhverfisstefnu í ríkisrekstri. Einn þáttur hennar er umhverfisstefna í opinberum innkaupum. Umhverfisráðuneytið ákvað í kjölfar samþykktar umhverfisstefnunnar að gefa út leiðbeiningarrit um umhverfisvæn innkaup. Ritið var unnið í samvinnu við Ríkiskaup, en einnig voru fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Samtökum iðnaðarins til ráðgjafar við verkið.

Opinberir aðilar verja gífurlegu fé í innkaup á ári hverju. Það er því ljóst að þeir geta haft umtalsverð áhrif á seljendur vöru og þjónustu með því að gera umhverfiskröfur í innkaupum sínum. Það ætti að vera opinberum aðilum metnaðarmál að sýna gott fordæmi í umhverfismálum með umhverfisvænum innkaupum og í raun ber þeim skylda til þess skv. umhverfisstefnu í ríkisrekstri.
Margir munu þó staldra við þegar þeir heyra hugtakið „umhverfisvæn innkaup“ og ljóst er að það mun taka nokkurn tíma að hrinda þeirri hugmynd í framkvæmd. Miklu skiptir að það sé ljóst að ekki er ætlunin að fórna hagkvæmni og gæðum við innkaup á kostnað umhverfissjónarmiða; þvert á móti miða umhverfisvæn innkaup að því að finna hagstæðasta kostinn þegar tillit er tekið til allra kostnaðarliða sem fylgja kaupum á ákveðinni vöru eða þjónustu. Einnig er mikilvægt að gera sér grein fyrir að umhverfisvæn innkaup þurfa ekki alltaf að kosta mikla fyrirhöfn, heldur má t.d. nýta sér viðurkennd umhverfismerki, s.s. Norræna umhverfismerkið (Svaninn). Það ætti að vera vinnuregla að kaupa vöru og þjónustu sem ber slíkt merki, séu aðrir þættir sambærilegir.

Vonandi verður þetta rit mönnum hvatning til þess að innleiða umhverfissjónarmið í opinber innkaup og vonandi nýtist það einnig fyrirtækjum og einkaaðilum við að gera innkaupastefnu sína „grænni“ en áður.

Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra