Jarðir

Hólssel

Útboðsnr Heiti Tilboðsfrestur
15030 Hólssel 15.5.2012 kl. 10:00
Tilboð óskast í fasteignina eyðijörðina Hólssel í Norðurþingi.
Hólssel Norðurþingi, eigandi Ríkissjóður Íslands.
Um er að ræða tveggja hæða einbýlishús sem byggt er úr timbri og holsteini ásamt hesthúsi og vélaskemmu á 34.636 m² leigulóð.
Húsið er samtals 166,6 m², byggt árið 1939. Þá er hesthúsið 62 m², byggt árið 1962 og véla- og verkfærageymsla 60 m², byggð árið 1979 skv. Fasteignaskrá Íslands. Einbýlishúsið þarfnast mikils viðhalds.
Brunabótamat eignarinnar er kr. 31.235.000,- og fasteignamat er kr. 5.467.000,-.
Húseignin verður til sýnis í samráði við Sigurð Leósson í síma 892 8209.
Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá ofangreindum aðila og hjá Ríkiskaupum ásamt reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðublaði.
Gögnin eru einnig aðgengileg á heimasíðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7, Reykjavík fyrir kl. 10.00 þann 15. maí 2012 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þess óska.