Sumarhús FS 2012
| Útboðsnr | Heiti | Tilboðsfrestur |
|---|---|---|
| 15253 | Sumarhús FS 2012 | 25.5.2012 kl. 10:00 |
Um er að ræða timburhús, 55m² að grunnfleti með millilofti sem reiknast um 7m² en er um 25m². Húsið er fullklárað að utan og fullklætt að innan án gólfefna, innréttinga og innihurða. Rafmagn er fullklárað með tilbúinni rafmagnstöflu. Húsið er klætt að utan með 32mm bjálkaklæðningu. Einangrað með 200mm steinull í gólfi og þaki og 125mm ull í útveggjum. Veggir eru allir klæddir með gifsplötum og síðan panilklæddir yfir það. Gluggar eru allir með tvöföldu k-gleri.
Húsið verður til sýnis í samráði við Gunnar Valdimarsson í síma 899-5163 og Ríkiskaup í síma 530- 1400
Tilboðseyðublöð og byggingarlýsing liggja frammi á sama stað og í afgreiðslu Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 10.00 þann 25. maí 2012 þar sem þau verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda er þess óska.
