Næstu viðburðir
UT og fjarskipti - kaupendafundur
Kaupendafundur á Grand hótel - Kynnið ykkur málið
Ríkiskaup bjóða til kaupendafundar á grand hótel þriðjudaginn 9. mars nk.
Þar gefst tækifæri fyrir lykilkaupendur og aðra áhugasama að koma og skoða stöðuna á fjarskipta- og tölvusamningunum og móta með okkur næsta útboð um leið og þeir kynna sér nýja samninga um ljósritunarpappír og ljósritunarvélar og prentlausnir.
Hvað er að gerast á markaðnum?
Endurspegla samningarnir það?
Hver er þróunin í rekstrarvörunum?
Hvað með hýsingu og rekstur?
Hugleiðingar um hugbúnaðarmál
|
Aðgangur er ókeypis – Allir velkomnir Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í: skraning@rikiskaup.is
|
|
Dagskrá:
UT samningur: Framlenging eða nýtt útboð ? Hvar liggja tækifærin? Bjarni Júlíusson, ráðgjafi fjallar um stöðuna á gildandi UT-samningi
Fjarskiptasamningur: Halldór Kristjánsson, ráðgjafi fjallar um stöðuna á rammasamningi um fjarskipti Gunnar Linnet, Vegagerðinni: reynsla kaupandans
Stutt kaffihlé # 10 mín#
Ljósritunarpappír: Nýr samningur kynntur Ljósritunarvélar, prentlausnir, fjölnotatæki og pappírstætarar: Nýir samningar kynntir
12.00 – Hádegisverður í boði Ríkiskaupa |
