« 21 jan. 2010 | 22 jan. 2010 | 23 jan. 2010 »
Eldhúsdagur Ríkiskaupa
Loksins loksins - Kynningarfundur um rammasamninga á Grand hótel
Grand hótel - 22. janúar kl. 14.00 - 16.00
Fræðsluröðin okkar heldur áfram á nýju ári og nú er komið að því að kynna nýja rammasamninga um fersk og frosin matvæli sem lengi hefur verið beðið eftir. Einnig kynnum við sérstaklega nýjan rammasamning um raftæki. Þá munum við einnig fjalla stutt um eldri samninga s.s. um aðra matvöru og borðbúnað. Sem sagt allt það helsta sem við höfum að bjóða í rammasamningum fyrir eldhús, stór og smá, kaffistofur og mötuneyti.
Lýðheilsustöð mun senda fulltrúa á svæðið til að fræða okkur nokkur af þeim verkefnumsem eru í gangi hjá þeim.
Við hvetjum alla sem koma að innkaupum á þessum vörum til að mæta og kynna sér samningana, hitta seljendur og annað innkaupafólk svo endilega áframsendið þessa tilkynningu á eldhúsfólkið ykkar.
Skráning fer fram í skraning@rikiskaup.is.
Ríkiskaup áskilja sér allan rétt til að fella niður viðburði ef þátttaka er ekki nægjanleg þannig að ekki gleyma að skrá ykkur.
Minnum á póstlistann okkar - Fréttabréf Ríkiskaupa tryggir þér auðveldan aðgang að upplýsingum um opinber innkaup:
- Útboð á vegum Ríkiskaupa
- Rammasamningar Ríkiskaupa
- Sala á eignum og jörðum
- Fræðsla og kynningarfundir
- Bílauppboð

