Ríkiskaup

Næstu viðburðir

03.11.2009, kl.10:00 - 17:00 Fræðsla

Hvatningar- og afmælisráðstefna Ríkiskaupa

Nýsköpun í 60 ár

Skraning_ráðstefna_2009Afmælisráðstefna Ríkiskaupa verður að þessu sinni tileinkuð nýsköpun og nýsköpunartækifærum. Fyrirhugað er að vera með málstofur fyrir hádegi frá kl. 10.00 - 12.00.

Boðið verður upp á hádegisverð og síðan verður ráðstefnan sett kl. 12.55 og henni lýkur síðan með afmæliskaffi klukkan 16.15.

Ráðstefnan er sérstaklega ætluð forstöðumönnum og öðru áhugafólki um nýsköpun og opinber innkaup.

Skráðu þig hjá Frímanni hér til hliðar

Þátttökugjald er kr. 5.000,-

*****************************************************************

NÝTT !

Þorsteinn Ingi Sigfússon mun segja frá því að innkaup geta og eiga að vera eitt af drifhjólunum í nýsköpun, sköpun nýrrar vöru og þjónustu. Þannig geta innkaup verið grundvöllur á velgengni nýrra hugmynda, fyrirtækja og atvinnutækifæra. Hann flytur einnig fréttir um nýjustu þróun í samskiptum Ríkiskaupa og NMÍ.

Þorgeir Pálsson fjallar um “Þróun flugstjórnarkerfa - dæmi um nýsköpun í ríkisrekstri”

Erindi Guðfinnu S. Bjarnadóttur mun bera yfirskriftina: "Kaup á nýsköpun"

Erindi Þórólfs Árnasonar heitir: "Spörum með rafrænum viðskiptum." Eitt helsta verkefni stjórnenda er að nýta auðlindir. Nýsköpun í rafrænum viðskiptum er mikil og nú þegar eru borðleggjandi leiðir til sparnaðar.

Erindi Baldurs Þorgilssonar ber heitið: "Opinber innkaup, heilbrigðiskerfið og nýsköpun" þar sem hann þættir saman þessa þrjá málaflokka.

Erindi Eyþórs Eðvarðssonar mun bera heitið: "Hvort sem gamalt vín er á nýjum belgjum eða nýtt vín er á gömlum belgjum þá er ljóst að það þarf góða gerjun..." og verður án efa spennandi að fá að heyra hvað er að gerjast hjá Eyþóri.

Kveðja, Frímann

***********************************************************************************************************

NÁNAR UM DAGSKRÁ RÁÐSTEFNUNNAR:

Ráðstefnan er á Grand hótel, Sigtúni frá kl. 10.00 - 17.00

   

09.30                      Mæting og skráning ráðstefnugesta

10.00 - 12.00           Málstofur – Vertu þátttakandi í þínum innkaupum

10.00 – 10:40          Kaup á ráðgjöf - Stutt framsaga og pallborðsumræður

                              Ríkiskaup, Ríkisendurskoðun ofl.

10.45 – 11.15          Siðferði í viðskiptum, Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur

11.20 – 12.00          Lead Market Initiative - LMI

12.00 -12.55           Hádegisverður

 

12.55 – 16.00        Ráðstefna – Geta opinber innkaup örvað nýsköpun?

12.55 – 13.10         Setningarávarp  

13.10 - 13.30          Þorsteinn I. Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

                             "Hvernig getur innkaupakarfan hvatt til nýsköpunar! "

13.30 - 13.50          Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar

13.50 – 13.55          Umræður

13.55 - 14.10          Þórólfur Árnason, forstjóri Skýrr - "Spörum með rafrænum viðskiptum"

14.10 – 14.25          Þorgeir Pálsson, forstjóri Flugstoða

14.25 – 14.30          Umræður

14.30 – 14.50          Guðfinna S. Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri LC ráðgjöf

14.50 – 15.10           Kaffihlé

15.10 – 15.25          Baldur Þorgilsson, KINE - Opinber innkaup, heilbrigðiskerfið og nýsköpun

15.25 – 15.40          Halldór Ó. Sigurðsson, innkaupastjóri LSH

15.40 – 15.45          Umræður

15.45 – 16.15          Eyþór Eðvarðsson, stjórnendaráðgjafi - "Hvort sem gamalt vín er á nýjum belgjum eða nýtt vín er á gömlum belgjum þá er ljóst að það þarf góða gerjun..."

16.15 – 17.00           Afmæliskaffi í tilefni af 60 ára afmæli Ríkiskaupa

 

Það er von okkar að sem flestir geti tekið daginn frá og eytt skemmtilegri dagstund með okkur.

Kynningarbásar á svæðinu: Impra - Svansmerkið  -  Metan/umhverfisvæn orka    

            

 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica