Næstu viðburðir
Val á ráðgjöf - Morgunverðarfundur
Ríkiskaup bjóða til morgunverðarfundar á Grand Hótel, Sigtúni þar sem umfjöllunarefnið er m.a. kaup á ráðgjöf, hvar liggja tækifæri til sparnaðar?
Morgunverður 8.00 og fundur hefst 8.15 og stendur til 10.00
Takið tímann frá, komið og hlýðið á áhugaverð erindi og styrkið tengslin við annað innkaupafólk og seljendur á markaði.
Nánari dagskrá:
"Hæfiskröfur og forsendur fyrir vali tilboðs"
Skúli Magnússon, ritari EFTA dómstólsins í Luxemborg
Hugleiðingar um hvernig standa ber að innkaupum á persónubundinni þjónustu
"Val á ráðgjöfum - Hvaða aðferð er best ?"
Óskar Valdimarsson, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins
Farið yfir þær aðferðir sem notaðar eru í opinbera markaðnum í dag við val á ráðgjöfum og stiklað á helstu kostum og göllum hverrar aðferðar frá sjónarhóli opinbers verkkaupa.
Þriðja og síðasta erindið fjallar um
"Val á hönnuðum hjá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar"
Ámundi Brynjólfsson, skrifstofustjóri mannvirkjaskrifstofu Reykjavíkurborgar
Aðgangur er ókeypis og fer skráning fram í netfangið skraning@rikiskaup.is

