Næstu viðburðir
Málstofa - Ný lög um opinber innkaup
Kynntar helstu breytingar frá eldri lögum
MÁLSTOFAN VERÐUR HALDIN Í HÚSAKYNNUM RÍKISKAUPA, BORGARTÚNI 7C
BOÐIÐ ER UPP Á EFTIRFARANDI DAGSETNINGAR:
ÞRIÐJUDAGINN 11. SEPTEMBER NK. KL.10:00 – 12:00
FIMMTUDAGINN 13. SEPTEMBER NK. KL. 10:00 - 12:00
DAGSKRÁ
Guðmundur I. Guðmundsson , yfirlögfræðingur hjá Ríkiskaupum mun fara yfir þau atriði laganna sem helst snerta kaupendur og seljendur s.s.: nýjar viðmiðunarfjárhæðir vegna útboða, kærufrest í útboðum, kröfur um hæfi bjóðenda, atriði er tengjast EES tilskipunum ásamt ýmsum öðrum atriðum er snerta framkvæmd opinberra innkaupa.
Umræður
Stutt hlé
Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa mun kynna það helsta sem er á döfinni hjá Ríkiskaupum auk þess að fara yfir nokkur helstu atriði í tengslum við hlutverk ábyrgðarmanns innkaupa.
Skráið ykkur með því að smella á hnappinn hér að neðan og taka fram dagsetningu og fjölda þátttakenda.

