Kaup og rekstrarleiga á bifreiðum fyrir ríkisstofnanir
Helstu flokkar og upplýsingar um umsóknir
Kaup eða leiga bifreiða á rekstrarleigukjörum fyrir stofnanir og ríkisfyrirtæki
Tekið hefur verið tilboðum í Bifreiðaútboði ríkisins 2011. Áætlað er að um 100 bifreiðar verði keyptar, eða leigðar á rekstrarleigu, fyrir stofnanir og ríkisfyrirtæki á árinu. Samkvæmt reglugerð 580/1991 um bifreiðakaup ríkisins bjóða Ríkiskaup bifreiðakaup ríkisins út og hafa milligöngu um þau. Ríkiskaup starfa jafnframt í samráði við Bílanefnd ríkisins, sem er fjármálaráðherra til ráðgjafar um framkvæmd reglugerðarinnar, þar sem fjármálaráðuneytið hefur yfirumsjón með allri bifreiðaeign ríkisins og notkun.
Markmiðið með útboðinu var m.a. að bjóða upp á fjölbreytt úrval bifreiða og að velja bifreiðar í hverjum flokki sem hafa lægsta koltvísýringsútblástur. Tilboð voru metin á verði og útblæstri CO2 og einnig var valkostum varðandi samsetningu búnaðar bifreiða fjölgað. Krafan um vistvænni/umhverfisvænni bifreiðar hefur aukist til muna og verður áherslan sífellt meiri frá ári til árs. Þeim tilmælum er beint til væntanlegra kaupenda að horfa, eins og kostur er, til þess hver CO2 tala viðkomandi bifreiðar er og taka virkan þátt í að ná niður koltvísýringsútblæstri út í andrúmsloftið.
Hvernig skal bera sig að við kaup eða leigu á bifreiðum
Þeir aðilar er hafa hug á að kaupa bifreiðar fyrir hönd stofnana eða ríkisfyrirtækja skulu senda inn UMSÓKN til bílanefndar ríkisins þar sem m.a. skal koma fram.
- heiti stofnunar eða ríkisfyrirtækis
- hvort um kaup eða rekstrarleigu sé að ræða
- lýsing á hlutverki og þörfum
- áætlaður akstur á ári
- óskir um sérbúnað og aukabúnað
Hægt er að fylla umsóknareyðublaðið út á vefnum og senda það inn með tölvupósti með því að ýta á hnappinn ,,Senda í tölvupósti”. Einnig er hægt að prenta blaðið út og senda til:
Ríkiskaup
B. t. Bílanefndar ríkisins
Borgartúni 7, 105 Reykjavík.
Er samþykki bílanefndar liggur fyrir skal senda PÖNTUNARBEIÐNI inn til Ríkiskaupa. Pöntunareyðublaðið er aðgengilegt á heimasíðu Ríkiskaupa og er hægt að senda það inn á rafrænu formi eða prenta það út og senda útfyllt inn til:
Ríkiskaup
Borgartúni 7, 105 Reykjavík.
ATH: Til þess að fylla út eyðublöðin á vefnum og prenta út eða senda útfyllt í tölvupósti, þarf útgáfu # 8.0 af Adobe Reader, sem hægt er að nálgast hér: Adobe reader 8.0
Bifreiðar í boði árið 2011
Boðið var út í þremur flokkum:
- bílar til kaupa
- bílar til rekstrarleigu með allt að 10.000 kílómetrum eknum á ári
- bílar til rekstrarleigu með allt að 20.000 kílómetrum eknum á ári
- bílar til rekstrarleigu með allt að 40.000 kílómetrum eknum á ári
Bent er á að ekki eru allar bifreiðar sem eru í boði í öllum flokkum þar sem boðið var sérstaklega í hvern flokk. . Þ.e.a.s. að bifreið í flokki bílar til kaupa þarf ekki endilega að vera í boði til rekstrarleigu og öfugt. Mikilvægt er að athuga vel í hvaða flokki þær bifreiðar eru sem sækja skal um. Helstu niðurstöður útboðsins ásamt upplýsingum um einstaka bílaflokka og framkvæmd samningsins er að finna hér fyrir neðan.
Útskýringar á einstökum bílaflokkum og framkvæmd samnings
PDF skrár með myndum yfir allar boðnar bifreiðar:| FLOKKUR A FÓLKSBÍLAR |
FLOKKUR B JEPPLINGAR |
FLOKKUR C JEPPAR |
| A1 = 0 - 1600cc A2 = 1601 - 2000cc A3 = 2001 - 3000cc |
B1 = 0 - 1600cc B2 = 1601 - 2000cc |
C2 = 2001 - 3000cc C3 = 3001 - 4000cc C4 = 4001 - 8000cc |
| FLOKKAR D - E - F PALLBÍLAR |
FLOKKUR G SENDIFERÐABÍLAR |
FLOKKAR H - I FÓLKSFLUTNIGABÍLAR |
| D1 = 0 - 2000cc (1f. hús) D2 = 2001 - 3000cc (1f. hús) E2 = 2001 - 3000cc (X-cab) F1 = 0 - 2000cc (2f. hús) F2 = 2001 - 3000cc (2f. hús) |
G1 = 0 - 2000cc G2 = 2001 - 3000cc |
H1 = 0 - 2000cc ( 7 farþ.) H2 = 2001 - 3000cc ( 7 farþ.) I1 = 0 - 2000cc ( 8 - 14 farþ.) I2 = 2001 - 3000cc ( 8 - 14 farþ.) I3 = 3001 - 4000cc ( 8 - 14 farþ.) |
Hér er finnur þú tollafgreiðslugengi hjá Tollstjóranum í Reykjavík:
http://www.tollur.is/displayer.asp?cat_id=263
Tengiliður Ríkiskaupa í Bílanefnd er Óskar Ásgeirsson
