Kaup og rekstrarleiga á bifreiðum fyrir ríkisstofnanir 2008
Árlega eru keyptar, eða leigðar á rekstrarleigu, yfir 150 bifreiðar fyrir stofnanir og ríkisfyrirtæki. Samkvæmt reglugerð 580/1991 um bifreiðakaup ríkisins bjóða Ríkiskaup bifreiðakaup ríkisins út og hafa milligöngu um þau. Ríkiskaup starfa jafnframt í samráði við Bílanefnd ríkisins, sem er fjármálaráðherra til ráðgjafar um framkvæmd reglugerðarinnar, þar sem fjármálaráðuneytið hefur yfirumsjón með allri bifreiðaeign ríkisins og notkun.
Lesa meira
Bifreiðatryggingar
Ríkiskaupum var fyrir u.þ.b. tveimur áratugum falið af Fjármálaráðuneytisinu að annast allar ábyrgðartyggingar bifreiða véla og tækja í eigu ríkisfyrirtækja og stofnana, sem eru tryggingarskyld.

