veltutölur rammasamninga
Skil á veltutölum
Seljendur í rammasamningskerfi Ríkiskaupa eiga skv. samningi að skila inn veltuupplýsingum í rammasamningum ársfjórðungslega til Ríkiskaupa. Yfirliti yfir heildarveltu skal skilað inn á þar tilgerðu eyðublaði.
EYÐUBLAÐ FYRIR SKIL Á VELTUTÖLUM - Excel 2007
EYÐUBLAÐ FYRIR SKIL Á VELTUTÖLUM - Excel eldri útg.
Auk þess skal skila inn sundurliðun á veltu eftir kennitölu kaupenda þannig að kennitala, nafn og heildarvelta tímabils án vsk. hvers og eins komi skýrt fram. Seljendur sem það geta eru hvattir til að senda inn skýrslur beint úr sölukerfum sem viðhengi. Veltuupplýsingar má senda inn hér á vefnum með því að smella á hnappinn hér að neðan og fylla út formið sem þar birtist eða í tölvupósti: RAMMAREKSTUR@RIKISKAUP.IS
Senda veltutölur til Ríkiskaupa
Athugið að senda eyðublaðið sem viðhengi með !!
Skilgreining á veltutölum: Í útboðsgögnum er gerð grein fyrir umsýsluþóknun til Ríkiskaupa og geta bjóðendur þannig gert ráð fyrir henni í boðnu verði eða afslætti. Aðeins skal skila inn veltu af umsaminni vöru eða þjónustu. Gefin er upp í veltutölum ein heildartala án vsk. á kennitölu. Sjá kennitölulista á vef Ríkiskaupa.
Það er á ábyrgð viðkomandi seljanda að allar veltutölur séu réttar og uppgefnar.
Skilagreinum skal skila til Ríkiskaupa í síðasta lagi 15. apríl f. 1. ársfjórðung, 15. júlí f. 2. ársfjórðung, 15. október f. 3. ársfjórðung og 15. janúar f. 4. ársfjórðung.
Aðild að rammasamningum
Allar ríkisstofnanir sem reknar eru að helmingi eða meira fyrir opinbert fé eru sjálfkrafa aðilar að rammasamningum Ríkiskaupa. Auk þeirra geta sveitarfélög sótt um aðild með skriflegu umboði til Ríkiskaupa til eins árs í senn. Ríkiskaup senda út bréf til allra sveitarfélaga á landinu í upphafi árs þar sem kynnt eru fyrirhuguð rammasamningsútboð á árinu og sveitarfélög eru hvött til áframhaldandi þátttöku í nýjum rammasamningum. Þá hafa einnig dvalar- og öldrunar-heimili sem eru í blandaðri eigu ríkis og sveitarfélaga og/eða sjálfseignarfélög rétt til aðildar.
Á vef Ríkiskaupa er að finna kennitölulista með þeim aðilum sem hafa rétt til að kaupa skv. rammasamningum og eiga að njóta umsaminna kjara. Listinn er ekki tæmandi og er birtur með fyrirvara um villur eða rangfærslur.
Seljendur að vöru eða þjónustu verða að taka þátt í rammasamningsútboðum til að eiga þess kost að verða aðilar að rammasamningum.
Skýringar á umsýsluþóknun til Ríkiskaupa
Ríkiskaup eru ríkisstofnun sem er rekin fyrir sjálfsaflafé.
Þegar miðlæg innkaupastofnun var sett á laggirnar kom tvennt til greina; að setja reksturinn á fjárlög eða láta hann standa undir eigin kostnaði og er það rekstrarformið sem varð fyrir valinu. Markmiðið er eingöngu að standa undir kostnaði við lögbundið hlutverk, ekki að skila hagnaði. Hlutfall þóknunar hefur verið að lækka jafnt og þétt eftir því sem samningar vaxa og þeim fjölgar.
Lögum samkvæmt: Í 89. gr. laga um opinber innkaup nr. 84/2007 er kveðið á um gjaldskrá Ríkiskaupa sem skal miðast við að tekjur standi undir rekstri Ríkiskaupa. Í 3. gr. gjaldskrárinnar sem fjármálaráðuneytið ákvarðar og gefur út og gildir frá 13. janúar 2010 er kveðið á um að þóknun til Ríkiskaupa geti numið allt að 2% af veltu rammasamninga.
Framkvæmd og innheimta: Ríkiskaup senda út reikninga til seljenda byggða á þeim veltutölum sem þeir skila inn ársfjórðungslega. Seljendur ábyrgjast réttar veltutölur. Hlutfall þóknunar er reiknað af heildarveltu án vsk. Umsýsluþóknunin ber hins vegar virðisaukaskatt.
Ef engin viðskipti hafa átt sér stað á tímabilinu milli rammasamningsaðila ber seljendum að skila inn eyðublaði skilagreina með núlltölu.
