RK 03.01 Tölvu- og hugbúnaður
Samningur gildir til 1.3.2015
Kaupendur geta skoðað kjör í samningi
með því að skrá sig inn hér til hliðar
Á döfinni
Nýr samningur tók gildi 26. febrúar 2013 og gildir í tvö ár.Markmið samningsins að veita áskrifendum
rammasamninga ríkisins sem fjölbreyttast úrval af tölvuvörum og hugbúnaði, að
uppfylltum kröfum til bjóðanda. Leitað er eftir því að aðilar bjóði sem
fjölbreyttast vöru- og þjónustuúrval í hverjum flokki útboðsins.
Samningurinn skilar þéttu dreifineti stórra söluaðila um allt land og jafnframt gefa kaupendum tækifæri til að skipta við smærri aðila sem hugsanlega hafa náð fram miklli sérhæfingu á einhverjum sviðum og geta boðið afburða þjónustu.
Samið var við 10 aðila í fimm flokkum, þar af eru fimm þjónustuaðilar sem bjóða alhliða þjónustu og vöruúrval í öllum flokkunum og fimm til viðbótar sem bjóða í afmarkaða flokka.
Sjá má skiptingu milli seljenda og flokka í meðfylgjandi töflu:
| Notendabúnaður | Miðlægur búnaður | Netbúnaður | Kerfishugbúnaður | Notendahugbúnaður | |
|---|---|---|---|---|---|
| Advania | X | X | X | X | X |
| Nýherji | X | X | X | X | X |
| Omnis | X | X | X | X | X |
| Opin kerfi | X | X | X | X | X |
| Epli | X | X | X | X | X |
| Exton | X | ||||
| Mason IT | X | ||||
| Sensa | X | X | |||
| Tölvulistinn | X | ||||
| Þekking | X | X |
Kaup innan samnings
Kaupandi getur valið um að kaupa inn í þessum rammasamningi á tvennan hátt:
1) Með beinum kaupum á þeim kjörum og
skilmálum sem eru skilgreindir í rammasamningnum. Við bein kaup í rammasamningi skulu kaupendur
gera samanburð milli seljenda á þeim þáttum fyrirhugaðra kaupa sem kunna að
hafa breyst í samningstíma t.d. einingaverð sem tengt er erlendu gengi og ný
vörunúmer.
Um örútboð
Örútboð er innkaupaferli þar sem kaupandi leitar tilboða meðal allra rammasamningshafa sem efnt geta samninginn þar sem kveðið er nánar á um verkefnið og óskað eftir tilboðum í tiltekin atriði s.s. útfærslu, tímaáætlun og heildarverð.
Áskilinn er réttur til að skilgreina nánar tæknilegt og fjárhagslegt hæfi bjóðenda eftir eðli og umfangi verkefnisins.
Örútboð getur farið fram hvort heldur með rafrænum hætti eða skriflegum. Þá er stutt lýsing á tilteknu verkefni send til seljanda í rammasamningnum og óskað eftir t.d. föstu tilboðsverði eða hámarksverði í tiltekið verkefni, að almennum kröfum rammasamnings og sértækum kröfum verkefnisins uppfylltum.
Smelltu hér til að hlaða niður leiðbeiningum vegna örútboða í þessum samningi.
| Seljandi | Tengiliður | Sími | Fax |
|---|---|---|---|
| Advania | Ari Sigurðsson | 569 5100 | |
| Epli (Skakkiturn ehf) | Ólafur Sólimann | 512 1300 | |
| Exton ehf. | Sverrir Hreiðarsson | 575 4600 | |
| Mason IT Iceland | Ægir Ármansson | 821 5110 | |
| Nýherji hf. | Jón Kristinn Jensson | 569 7700 | |
| Omnis ehf. | Bjarki Jóhannesson | 444 9900 | |
| Opin Kerfi hf. | Sævar Haukdal | 570 1000 | |
| Sensa ehf. | Valgerður H. Skúladóttir | 414-1400 | 414-1440 |
| Tölvulistinn | Óskar Þór óskarsson | 414 1700 | |
| Þekking | Adolf Þ. Andersen | 460 3100 | 460 3101 |
| Senda verðkönnun/fyrirspurn til tengiliða seljenda | |||
