RK 14.28 Flugsæti - Millilandafargjöld
Samningur gildir til 3.12.2012
Kaupendur geta skoðað kjör í samningi
Á döfinni
Nýr samningur um flugfargjöld til og frá Íslandi tók gildi 1. júlí 2011 og gildir í eitt ár.Samningnum hefur verið sagt upp og verða samningslok þann 3. desember 2012. Nýtt útboð er í undirbúningi.
Vinsamlegast athugið
Skv. fréttatilkynningu dags. 25. október 2012 hefur WOW air tekið yfir allan flugrekstur og áætlunarflug Iceland Express frá og með þeim degi. Skv. tilkynningunni frá Wow munu þær ferðir sem þegar hafa verið pantaðar hjá Iceland Express standa óbreyttar nema tilkynning þess efnis berist frá félaginu.
Iceland Express er þar með fallið úr rammasamningi RK 14.28 um flugfargjöld erlendis út samningstímann eða til 3. desember 2012.
Samningurinn nær til kaupa á flugsætum til og frá Kaupmannahöfn, London, Brussel, New York og Boston. Eftir stendur einn samningsaðili, Icelandair sem býður reglulegar ferðir til allra fimm áfangastaðanna.
Nýtt rammasamningsútboð á þessari þjónustu er í undirbúningi hjá Ríkiskaupum.
Samið var upphaflega um flugsæti til og frá Kaupmannahöfn, London, Brussel, New York og Boston.
Rammasamningurinn, sem er liður í því að draga úr ferðakostnaði en áður hefur verið unnið í því að fækka ferðum og breyta fyrirkomulagi ferða á vegum ráðuneyta og ríkisstofnana, tryggir ríkisstarfsmönnum hagstæð kjör á flugsætum til og frá landinu, óháð ferðatíma.
Icelandair býður fastan afslátt á öllum fimm leiðunum og Iceland Express býður nú föst verð á tveimur leiðum, þ.e. til Kaupmannahafnar og London. Auk þessa geta aðilar að rammasamningum ætíð nýtt sérstök tilboð flugfélaganna tveggja ef slíkt reynist hagstæðara.
Mikilvægt er að starfsmenn gefi upp kennitölu viðkomandi stofnunar við bókun til að tryggja að umsaminn kjör skili sér til kaupenda.
Nánari upplýsingar um samninginn
ICELAND EXPRESS
Viðskiptavinir
Iceland Express hafa aðgang að rammasamningskjörum í bókunarkerfi fyrirtækisins
í gegnum sérstaka vefsíðu. Hlekkur á bókunarsíðuna er aðgengilegur innskráðum
notendum undir helstu kjör og afslættir. Þar munu kaupendur fá aðgangsorð og
lykilorð sem gerir þeim kleift að bóka flugsæti.
Farþega er heimilt að taka 20 kg. í innrituðum farangri og 10 kg. í
handfarangri.
Kaupendur
eru hvattir til að nota kort (kreditkort/innkaupakort) til að greiða fargjöld
fyrir starfsmenn sína vegna trygginga sem fylgja bókun með kreditkortum. Einnig
verður möguleiki fyrir kaupendur að vera í reikningsviðskiptum við Iceland
Express.
Einnig má bóka beint hjá mailto:Vidskiptaferdir@icelandexpress.is eða í síma 5500600
Kaupendur sem bóka farmiða hjá þjónustufulltrúa greiða aukagjald.
ICELANDAIR
Bókanir fara fram í gegnum sérstaka bókunarvél Icelandair. Linkur á bókunarvélina er aðgengilegur innskráðum notendum undir helstu kjör og afslættir. Til að bóka flugsæti á kjörum samnings þurfa stofnanir að hafa svokallaðan DD kóða sem Icelandair úthlutar stofnunum.
Einnig er hægt að bóka símleiðis hjá Viðskiptasöludeild Icelandair. Síminn er 50 50 757
Stofnanir sem þegar eru með DD kóða skv. eldri samningi við Icelandair geta notað hann áfram.
Tengiliðir hjá Icelandair veita nánari upplýsingar:
Sigríður Björnsdóttir - sigga@icelandair.is - S. 5050168
Anna Jóhanna Alfreðsdóttir - annaa@icelandair.is - S. 5050548
| Seljandi | Tengiliður | Sími | Fax |
|---|---|---|---|
| Iceland express | Guðrún St. Svavarsdóttir | 5500 600 | 5500 601 |
| Icelandair | Sigríður Björnsdóttir | 5050 300 | |
| Senda verðkönnun/fyrirspurn til tengiliða seljenda | |||
