RK 14.22 Ráðgjöf í upplýsingatækni
Samningur gildir til 1.10.2013
Kaupendur geta skoðað kjör í samningi
með því að skrá sig inn hér til hliðar
Á döfinni
Nýr samningur hefur tekið gildi frá 18.10.2011 og gildir í tvö ár.ATH - Advania hækkar verð frá 15. febrúar 2013
ATH - Capacent hækkar verð frá 15. október 2012
ATH - Gagnavarslan hækkar verð frá 15. maí 2012
ATH - Admon hækkar verð frá 15. maí 2012
Hvaða þjónusta fellur undir þennan samning?
Samið var um eftirfarandi 13 þjónustuflokka:
Er þín stofnun með vefsíðu? Vefsíðugerð og þjónusta er lýtur að uppsetningu
og þjónustu vefsvæða fellur undir þennan samning.
Ríkiskaup hvetja kaupendur til að skoða úrval þjónustuaðila í samningi og bera saman verð. Verðkönnun eða örútboð er góður kostur.
Hæfniflokkar A, B og C
FLOKKUR A
Þekking: Ráðgjafi hefur 0-3 ára gamla menntun á sínu sviði, að lágmarki BSc gráðu í upplýsingatækni.
Ræður við einföld verkefni.
Reynsla: Ráðgjafi hefur 1-3 ára reynslu á vinnumarkaði
ásamt því að hafa tekið þátt í einu eða fleirum
álíka verkefnum og boðin
eru.
Stjórnunarhæfni: Ráðgjafi þarf leiðbeiningar frá öðrum.
Sjálfstæði: Getur unnið einsamall einföld, vel afmörkuð verk.
FLOKKUR B
Þekking: Lágmarksmenntun er BSc gráðu í upplýsingatækni. Ráðgjafi er mjög hæfur og er með mjög
góða þekkingu á sínu sviði.
Reynsla: Að minnsta kosti 4 ára reynsla sem ráðgjafi. Hann
er góð fyrirmynd annarra ráðgjafa. Hann hefur tekið þátt í og lokið
stórum verkefnum í háum gæðaflokki.
Stjórnunarhæfni: Ráðgjafi getur borið ábyrgð á verkefnum í sínu sviði og verið í forystu í minni og millistórum hópum.
Sjálfstæði: Getur vel unnið sjálfstætt.
FLOKKUR C
Þekking: Lágmarksmenntun er Meistaragráða í upplýsingatækni
eða sambærileg menntun. Hæfni í hæsta gæðaflokki og viðkomandi talinn
sérfræðingur á sínu sviði.
Reynsla: Reynsla sem ráðgjafi með mörg stór unnin verkefni í háum gæðastaðli í ferilskrá sinni.
Stjórnunarhæfni: Hefur langa og umtalsverða reynslu sem stjórnandi og hefur unnið í leiðandi störfum.
Sjálfstæði: Mjög mikið.
Af hverju var þessu skipt svona upp?
