Hagnýtt efni
Bifreiðatryggingar
Tryggingarnar eru boðnar út í almennu útboði. Síðast var samið við TRYGGINGAMIÐSTÖÐINA og gildir sá samningur til 30.04.2011
Samningurinn um tryggingarnar er hverju sinni til tveggja ára með ákvæði um tvisvar sinnum eins árs framlengingu.
Þegar ný bifreið er pöntuð frá Ríkiskaupum f.h. ráðuneytis eða stofnunar í eigu ríkisins er tilgreint á pöntuninni til bifreiðaumboðsins, tryggingafélagið sem er með samninginn hverju sinni. Kaupandi eða rekstrarleiguhafi bifreiðar þarf samt sem áður að gæta að því að bifreiðin tryggist hjá viðkomandi tryggingafélagi. Sama á við ef keypt er notuð bifreið, kaupandi þarf að tilgreina viðkomandi samnings-tryggingafélag.
Þar með nýtur bifreiðin þeirra kjara sem útboðið bíður. Tryggingin er ábyrgðartrygging með ákveðinni eigin áhættu v. framrúðutjóns. Áhættusvæði gjaldskrár trygginganna eru þrjú og allir bifreiðar á sama svæði greiða sömu upphæð, óháð tjónatíðni ,stærð og þunga bifreiðar.
Núverandi samningstímabil er eins fyrir allar tryggingar, frá 1.mars til 28.febrúar næsta árs.
Reikningagerð, greiðslur og öll fjárumsýsla vegna trygginganna er á hendi Ríkiskaupa.
Þegar skipt er um bifreið tilkynnist ný trygging til Umferðastofu sem berst þaðan til tryggingafélagsins. Tryggingafélagið sendir rafrænt til Ríkiskaupa, eftir hver mánaðarmót allar breytingar frá undangengnum mánuði. Endurgreiðslur trygginga vegna tímabils sem er áður búið að greiða, berast frá Ríkiskaupum í kjölfarið. Þegar tryggendur vantar upplýsingar eða þurfa að biðja um leiðréttingar af einhverju tagi vegna trygganna, hafa þeir samband við umsjónarmann trygginganna hjá Ríkiskaupum.
Ef það eru í dag einhverjar bifreiðar sem eru ekki tryggðar í tryggingasamningnum en falla undir samninginn, skulu umsjónarmenn þeirra eining hafa samband við umsjónarmann Ríkiskaupa sem sér um flutning tryggingarinnar inn í samninginn.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR UMSJÓNARMAÐUR SAMNINGSINS:

