Ríkiskaup - Útboð skila árangri Ríkiskaup

Valmynd.


Hagnýtt efni

Hagnýtt efni

Kaup á ljósritunarvélum

Hvað ber að hafa í huga?

Algengt verð á ljósritunarvél sem tekur 40 eintök á mínútu er um 300 þúsund krónur. Flestum þykja þetta dýrar fjárfestingar og freistast kaupendur því oft til að kaupa eins litla/ódýra ljósritunarvél og þeir mögulega geta.   Þetta eru verstu og um leið algengustu mistökin sem hægt er að gera við slík kaup þar sem að því minni sem ljósritunarvélar eru, því dýrari eru þær í rekstri, þ.e. frekari á duft og þurfa tíðari skiptingu á rekstrarhlutum eins og tromlum. Oft getur hér munað verulegu.  Tökum eftirfarandi dæmi.

 Ljósritunarvél A kostar 300.000 krónur og tekur 40 bls. á mín.

Ljósritunarvél B kostar 90.000 krónur og tekur 20 bls. á mín.

Kaupandi A (kaupir vél A) og kaupandi B  (kaupir vél B) ljósrita báðir svipað magn eða um 200.000 eintök á ári sem gera um 833 blaðsíður hvern virkan vikudag. Heildarrekstrarkostnaður við vél A er 1,4 króna á síðu en við vél B er 2,9 krónur.

 Á einu ári er heildarkostnaður við vél A, þ.e. rekstrarkostnaður og kaupverð orðinn 580.000 krónur en á sama tíma er rekstrarkostnaður og kaupverð við vél B orðinn 670.000.  Eftir tvö ár er kaupandi B sem ætlaði að spara með litlu vélinni búinn að greiða 390.000 krónum meira fyrir ljósritun en sá sem fjárfesti í stærri vélinni.

 Nýleg tækni í ljósritunarvélum gerir kleyft að nettengja þær á stórum skrifstofum og nota sem prentara.  Um er að ræða gríðarlegan sparnað þar sem verð á prentuðu eintaki úr ljósritunarvél er verulega ódýrari en úr laserprenturum, sérstaklega minni prenturum þar sem munur getur hæglega verið allt að fjórfaldur. 

Því er ljóst að huga þarf ítarlega að þörfum fyrirtækja áður en kaup á ljósritunarvélum eiga sér stað og hvort hugsanlega megi spara með því að leggja minni prenturum en tengja notendur inn á hagstæðasta prentarann (ljósritunarvélina) í húsinu í staðinn.

 




Rammasamningar

  • Aðild að rammasamningum ríkisins
  • Leit í rammasamningum
  • Seljendur
  • Mötuneyti kaffistofur fundaveitingar
  • Rekstur bifreiða og fasteigna
  • Sérfræðiráðgjöf og þjónusta
  • Sjúkravörur
  • Skrifstofan og skólinn
  • Upplýsingatækni og fjarskipti
  • Aðrir samningar
  • Hagnýtt efni
  • Innkaupakort ríkisins

Leita


Þú ert hér: Forsíða > Rammasamningar > Hagnýtt efni

MPA nám

  • Forsíða
  • Útboð
  • Rammasamningar
  • Til sölu
  • Fræðsluröð
  • Bílanefnd
  • Um Ríkiskaup

 
  • Útboð
    • Útboð í auglýsingu
    • Opnun tilboða
    • Niðurstaða útboða
    • Fyrirhuguð útboð 2012
    • Lög og reglur
    • Umhverfisskilyrði
  • Til sölu
    • Almennt um sölu muna ofl.
    • Bifreiðar
    • Fasteignir
    • Jarðir
    • Bækur og rit
  • Rammasamningar
    • Aðild að rammasamingum Ríkiskaupa
    • Um verðkannanir
    • Um örútboð
    • Um kaup á sérfræðiþjónustu
  • Um Ríkiskaup
    • Hlutverk og markmið
    • Innkaupastefna ríkisins
    • Siðareglur
    • Lög og reglur
    • Flýtileiðir
    • Útgefið efni
    • Tryggingar
    • Lagalegt umhverfi
    • Kærunefnd útboðsmála
    • Viðmiðunarfjárhæðir og tilboðsfrestir

Ríkiskaup | Borgartúni 7c - 105 Reykjavík | s:530-1400 | kt. 660169-4749 | rikiskaup ( @ ) rikiskaup ( . ) is

Flýtival

  • Hafa samband
  • Veftré

Tungumál

  • English

RSS áskrift

  • RSS áskrift

Flýtival

  • Um vefinn
  • Veftré
  • Starfsfólk
  • Hafðu samband

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica