Ríkiskaup - Útboð skila árangri Ríkiskaup

Valmynd.


Hagnýtt efni

Hagnýtt efni

Leiðbeiningar við kaup á sérfræðiþjónustu

Aukið framboð á þjónustusamningum hjá Ríkiskaupum

Aðkeypt þjónusta og ráðgjöf eru flokkar sem fara stigvaxandi innan rammasamningskerfisins og verða þjónustuflokkar í árslok 2010 orðnir 8 talsins:

1. Endurskoðun og reikningshald
2. Lögfræðiþjónusta
3. Ráðgjöf í upplýsingatækni
4. Rekstrarráðgjöf
5. Túlka- og þýðingaþjónusta
6. Viðhaldsþjónusta verktaka fyrir fasteignir ríkisins á höfuðborgarsvæðinu
7. Þjónustasérfræðinga í umhverfis-, skipulags-, og byggingamálum
8. Öryggisgæsla

Ríkiskaup í samvinnu við Ríkisendurskoðun hafa gefið út leiðbeiningar fyrir kaupendur um hvernig skuli staðið að þjónustukaupum hjá ríkinu.

Kaupendur eru hvattir til að vanda til undirbúnings s.s. meta hvenær þörf er á aðkeyptri ráðgjöf, hafa skal skýra verk- eða markmiðslýsingu til viðmiðunar, og gera kostnaðaráætlun. Þá er einnig talað um mikilvægi þessa að hafa skýra verkefnastjórnun og að fylgst sé grannt með framgangi og eftirfylgni verkefna.

Í ritinu er farið yfir svokölluð örútboð innan rammasamninga sem nýtast kaupendum við stærri innkaup.

Leiðbeiningaritið má skoða hér á síðunni og undir útgefið efni. Einnig er hér að finna sýnishorn að samningi um ráðgjafaþjónustu sem kaupendur geta haft til hliðsjónar.
baeklingur_serfraedithonusta_prent_kapa_Page_1Leiðbeiningarit Ríkiskaupa: Kaup á ráðgjöf

 

Kaup á ráðgjöf utan rammasamnings er útboðsskyld, fari kostnaðaráætlun yfir 10 milljónir, en heimilt er að bjóða einnig út verkefni undir 10 milljónum. Fari áætlaður kostnaður yfir 11,7 milljónir ber auk þess að auglýsa útboðið á Evrópska
efnahagssvæðinu. Þá er gott að hafa eftirfarandi í huga:


• Frestur í almennu útboði: 15 dagar. Frestur reiknast frá deginum eftir að útboðsauglýsing er birt að meðtöldum
opnunardegi. Allir almanaksdagar eru taldir með.
• Frestur í hraðútboð: 7 dagar.
Ef nauðsynlegt er að hraða útboði af ástæðum sem kaupanda verður ekki um kennt er heimilt að víkja frá þeim frestum sem hér að ofan greinir.
• Frestur í EES-útboði: 52 dagar.
Fari áætlaður kostnaður við kaup á ráðgjöf yfir 11,7 milljónir án vsk. ber að auglýsa útboðið á Evrópska efnahagssvæðinu (EES).
• Frestur í örútboði eða verðkönnun: Frjáls.



Rammasamningar

  • Aðild að rammasamningum ríkisins
  • Leit í rammasamningum
  • Seljendur
  • Mötuneyti kaffistofur fundaveitingar
  • Rekstur bifreiða og fasteigna
  • Sérfræðiráðgjöf og þjónusta
  • Sjúkravörur
  • Skrifstofan og skólinn
  • Upplýsingatækni og fjarskipti
  • Aðrir samningar
  • Hagnýtt efni
  • Innkaupakort ríkisins

Leita


Þú ert hér: Forsíða > Rammasamningar > Hagnýtt efni

MPA nám

  • Forsíða
  • Útboð
  • Rammasamningar
  • Til sölu
  • Fræðsluröð
  • Bílanefnd
  • Um Ríkiskaup

 
  • Útboð
    • Útboð í auglýsingu
    • Opnun tilboða
    • Niðurstaða útboða
    • Fyrirhuguð útboð 2012
    • Lög og reglur
    • Umhverfisskilyrði
  • Til sölu
    • Almennt um sölu muna ofl.
    • Bifreiðar
    • Fasteignir
    • Jarðir
    • Bækur og rit
  • Rammasamningar
    • Aðild að rammasamingum Ríkiskaupa
    • Um verðkannanir
    • Um örútboð
    • Um kaup á sérfræðiþjónustu
  • Um Ríkiskaup
    • Hlutverk og markmið
    • Innkaupastefna ríkisins
    • Siðareglur
    • Lög og reglur
    • Flýtileiðir
    • Útgefið efni
    • Tryggingar
    • Lagalegt umhverfi
    • Kærunefnd útboðsmála
    • Viðmiðunarfjárhæðir og tilboðsfrestir

Ríkiskaup | Borgartúni 7c - 105 Reykjavík | s:530-1400 | kt. 660169-4749 | rikiskaup ( @ ) rikiskaup ( . ) is

Flýtival

  • Hafa samband
  • Veftré

Tungumál

  • English

RSS áskrift

  • RSS áskrift

Flýtival

  • Um vefinn
  • Veftré
  • Starfsfólk
  • Hafðu samband

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica