Ríkiskaup
Aðrir viðburðir

Skrifstofutæki og prentlausnir - Vistvæn skilyrði

Öll boðin tæki skulu vera orkusparandi og merkt t.d. Energy Star eða sambærilegt.

Öll boðin tæki skulu vera með þeim möguleika að láta þau “sofa” þegar þau eru ekki í notkun.

Allur pappír þarf að standast sömu gæða- og umhverfiskröfur og settar eru í samningi um ljósritunarpappír.


Gátlisti fyrir tölvu- og skrifstofubúnað

Hér er átt við tölvur, prentara, skjái, ljósritunarvélar og annan tölvubúnað og skrifstofutæki.

Veljið skrifstofubúnað sem er umhverfismerktur ef mögulegt er. Hægt er að fá umhverfismerktar tölvur og skjái, t.d. merktar með TCO (t.d. TCO '03 eða TCO '06) eða með Svansmerkinu. Þessar umhverfisvottanir gera kröfur m.a. um orkunotkun, hávaða og innihald þungmálma.

Veljið  skrifstofutæki sem hafa góða orkunýtingu. Veljið búnað sem er með viðurkennt orkusparnaðarmerki s.s. Energy Star.

Biðjið birgja um að halda magni umbúða í lágmarki og að hann taki við umbúðunum aftur og komi þeim til endurvinnslu.




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica