Vistvæn innkaup

Ljósritunarpappír - Vistvæn skilyrði

Framleiðsla pappírs skal vera stöðluð skv. ISO 216, ISO 9001, ISO 14001, EMAS og eða sambærilegum stöðlum.
Sýrustig pappírs skal vera skv. ISO-9706 um permanent pappír, sem þýðir pH 7,5-10.

Pappír skal vera vottaður með Svansmerkinu eða sambærilegri vottun.
Þyngd A4 ljósritunarpappírs skal vera 80 g/m².
CIE hvítleiki pappírs skal vera yfir 150 og grófleiki undir 220.
Pappír skal vera rykfrír og rétt skorinn þannig að hann flækist ekki í tækjum.
Pappír má ekki vera bleiktur með klórgasi.

Ekki er leyfilegt að selja pappír í rammasamningi sem ekki stenst þessi skilyrði.

Vistvæn skilyrði fyrir prent- og ljósritunarpappír á vinn.is

Gátlisti fyrir skrifstofupappír

Veljið pappír sem er umhverfismerktur. t.d. með Svansmerkinu, Blóminu eða Bláa Englinum. Viðurkennt umhverfismerki er trygging fyrir því að viðkomandi vara er uppfyllir strangar umhverfiskröfur og að umhverfisáhrif vörunnar hafi markvisst verið lágmörkuð á öllum stigum lífsferils hennar, án þess að það sé á kostnað virkni eða gæða vörunnar.

Leitið leiða til að draga úr innkaupum á pappír. Nokkur ráð um þetta er að finna hér að neðan.

Veljið pappír sem hæfir notkun. Þannig er stuðlað að því að ekki sé notaður þykkari eða meira meðhöndlaður pappír en þörf er á. Þó getur borgað sig að nota þykkari pappír af meiri gæðum til að hámarka endingu þess sem verið er að prenta, þegar það á við.

Forðist að kaupa litaðan pappír. Litaður pappír hefur í för með sér meiri umhverfisáhrif en hvítur pappír því hann krefst aukinnar efnanotkunar við framleiðslu og endurvinnslu.