Ríkiskaup

Þjónusta iðnaðarmanna

RK 17 Iðnaðarmenn

Samningur gildir til 31.8.2013

Kaupendur geta skoðað kjör í samningi

með því að skrá sig inn hér til hliðar

Á döfinni

Nýir rammasamningar um þjónustu iðnaðarmanna tóku gildi 1. september 2011 og gilda í tvö ár.

ATH Ljósvakinn hefur hækkað verð frá 15. apríl 2012
ATH Blikkás hefur hækkað verð frá 15. mars 2012

ATH Ljósgjafinn hefur hækkað verð frá 15. febrúar 2012
ATH Blikk og tækniþjónusta hefur hækkað verð frá 15. janúar 2012

Kaupendahópurinn

Mikilvægustu stofnanirnar eru Fasteignir ríkissjóðs og Framkvæmdasýsla ríkisins sem sjá um öll stærri viðhaldsverkefni fyrir stofnanir ríkisins. Þjóðarbókhlaðan er dæmi um stofnun sem sér alfarið um viðhald sinna fasteigna óháð umfangi. Stofnanir sjá hins vegar sjálfar um að panta iðnaðarmenn í öll smærri verkefni.

Þjónustuaðilar

Yfir 350 verktakar og iðnaðarmenn eru í samningi, stór og lítil verktakafyrirtæki sem og einyrkjar.
Til að auðvelda kaupendum að þjónustunni valið, flokkuðu seljendur sig í stærðarflokka eftir umfangi verkefnanna. Sjá innkaupaleiðir og verkefnin.

Aðalverktaka: Með aðalverktöku er átt við fyrirtæki sem eru reiðubúin að bjóða í verkefni sem innifela verk á sviði viðhalds, endurnýjunar og viðbóta í fleiri en einni þeirra. Vakin er athygli á því að hér er ekki um að ræða nýframkvæmdir.
Þjónustuflokkar í samningi eru annars þessir: blikksmíði og annar málmiðnaður, dúkarar, málarar, múrarar, pípulagningar, rafiðnaður, skrúðgarðyrkja og trésmíði.
Viðhald og hirðing lóða er meðal þess sem fellur undir flokkinn skrúðgarðyrkja.


Listi yfir flokka og samningsaðila á EXCELFORMI.
Innskráðir notendur finna excelskjal með upplýsingum um heildarsamninginn hér að neðan undir helstu kjör og afslættir.

Innkaupaleiðir og verkefninVidhaldthjonusta_Mynd2

Samningurinn nær eingöngu til verkefna á sviði viðhalds, endurbóta og viðbóta en EKKI nýframkvæmda. Þar sem þarfir kaupenda og verkefnin eru afar mismunandi voru seljendur látnir flokka sig í þrjá flokka eftir stærð og umfangi þeirra verkefna sem þeir ráða við.

  • Flokkur 1 eru einstök verk allt að 10 milljónum
  • Flokkur 2 eru einstök verk frá 11 – 50 milljónum
  • Flokkur 3 eru einstök verk yfir 50 milljónum

Þegar um er að ræða lítil einstök viðhaldsverkefni er hægt að velja þjónustuaðila beint af listanum fyrir viðkomandi iðngrein. Ríkiskaup mæla með því að framkvæma verðkönnun ef ekki er ljóst hvernig tímagjaldi yrði háttað. Fyrir öll kostnaðarsöm eða umfangsmeiri verk sem og þjónustusamninga til lengri tíma mælum við með að kaupendur fari í örútboð innan rammasamnings. Oft er miðað við verk yfir 200 tíma.
Leiðbeiningar um hvernig staðið skal að örútboðum eru að finna á vef Ríkiskaupa.  Ríkiskaup geta einnig verið kaupendum innanhandar með ráðgjöf eða séð um örútboð að öllu eða einhverju leiti.

ATHUGIÐ AÐ EFTIRFARANDI SVEITARFÉLÖG ERU EKKI AÐILAR AÐ ÞESSUM RAMMASAMNINGI:

Akranes                                            
Akureyri                                           
Dalvíkurbyggð
Fljótsdalshreppur
Kópavogsbær
Mýrdalshreppur
Skagafjörður
Svalbarðsstrandarhreppur
Sveitarfélagið Árborg

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica