Leigubílar

RK 05.02 Leigubílar

Samningur gildir til 31.8.2014

Kaupendur geta skoðað kjör í samningi

með því að skrá sig inn hér til hliðar

Á döfinni

ATH - Nýr samningur tók gildi 28. ágúst 2012

Rafræn reikningsviðskipti hjá hreyfli

Hreyfill býður upp á nokkra möguleika í pappírslausum viðskiptum.
Ath. Ef bíll er tekinn á götunni og greiddur með korti koma engar skýringar á reikninginn aðrar en númer bíls,
númer korts, dagsetning, klukka og lengd ferðar og óvíst er að stofnanir séu að fá umsaminn kjör !!


Við lok síðustu aldar tók Hreyfill upp tölvukerfi í leigubílum og þar með kom sá möguleiki að skrá ferðirnar rafrænt inn á viðskiptareikning. Í gegnum árin hefur þessi möguleiki sífellt notið meiri vinsælda hjá fyrirtækjum og stofnunum, enda mun auðveldara að fara yfir og bóka tölvuskrifaða reikninga en misvel skrifaðar nótur. Einnig opnaðist sá möguleiki að búa til
deildarreikninga, þannig að færslur sundurliðist eftir deildum. Þrjár meginleiðir hafa verið notaðar til að skrá rafrænt á reikning. Tvær tegundir af kortum sem notast svipað og hefðbundin greiðslukort, og pöntun á reikning með lykilorði.

Einnota pappírskort með segulrönd: stíluð á viðkomandi félag/deild. Kortin hafa raðnúmer sem birtist á reikningi við
notkun, og fylgir skráningarblað hverjum kortabunka til að hjálpa til við eftirfylgni. Þessi kort henta vel fyrir ferðir
starfsfólks og gesta/skjólstæðinga, í samráði við stjórnanda.
Margnota plastkort með segulrönd: stílað á handhafa og tengt félagi/deild. Gildistími er tvö ár og eru þessi kort hugsuð fyrir
þá sem mikið nota leigubíla, svo sem yfirstjórnendur.
Símapöntun með lykilorði: Afgreiðsla Hreyfils skráir ferðina fyrirfram á viðskiptareikning. Sá sem pantar gefur upp
reikningsnúmerið og lykilorðið sem staðfestingu á að það megi reikningsfæra ferðina.

Að ferð lokinni uppfærast upplýsingar frá bílnum í viðskiptakerfi Hreyfils. Upplýsingarnar innihalda dagsetningu og tíma á lokum ferðar, ekna km, stöðvarnr. bílsins og upphæð ferðar, ásamt upphafs og loka staðsetningum ferðar.
Þegar mánuðurinn er liðinn, eru gögnin færð á reikning viðkomandi félags/deildar. Sé um undirreikning að ræða færast fjárhagsfærslur á höfuðreikning, svo ekki þurfi að greiða af mörgum reikningum, en deildin fær sitt yfirlit.

Einnota kort hafa notið mestra vinsælda. Þá hefur ábyrgðaraðili bunka af kortum hjá sér og við úthlutun korts skráir hann upplýsingar um ferðina, dags., frá og til og nafn farþega. Þar til gert skráningarblað fylgir hverjum bunka.
Töluvert hagræði er af notkun viðskiptakorta, fyrir bókhald sem og notendur korta, enda fljótlegra en að höndla skrifaðar nótur.

Seljandi Tengiliður Sími Fax
Hreyfill svf Sæmundur Kr. Sigurlaugsson 588-5522 588-5526
Senda verðkönnun/fyrirspurn til tengiliða seljenda