Ríkiskaup

Upplýsingatækniráðgjöf

RK 14.22 Ráðgjöf í upplýsingatækni

Samningur gildir til 1.10.2013

Kaupendur geta skoðað kjör í samningi

með því að skrá sig inn hér til hliðar

Á döfinni

ATH !! Nýr samningur hefur tekið gildi frá 18.10.2011 og gildir í tvö ár.

Hvaða þjónusta fellur undir þennan samning?

Samið var um eftirfarandi 13 þjónustuflokka:

Stefnumótun og þróun í upplýsingatækni, Verkefnastjórnun, Arkitektúr upplýsingakerfa, Þarfagreining, innkaup, matslíkön, móttökuprófanir og innleiðing, Liðsauki og stuðningur við verkkaupa, Ráðgjöf í rafrænum viðskiptum, margmiðlun, inter- og intraneti, Ráðgjöf í öryggismálum, varaleiðum og endurheimtingu gagna, Ráðgjöf í útvistun og hýsingu, Fjarskiptaráðgjöf, Þjálfun í stjórnun UT mála, Hugbúnaðargerð, Viðskipta- og stjórnunarráðgjöf, Skjala- og þekkingarstjórnun.

Er þín stofnun með vefsíðu? Vefsíðugerð og þjónusta er lýtur að uppsetningu
og þjónustu vefsvæða fellur undir þennan samning.

Er þinn þjónustuaðili í rammasamningi? Er komið að uppfærslu eða endurnýjun?
Ríkiskaup hvetja kaupendur til að skoða úrval þjónustuaðila í samningi og bera saman verð. Verðkönnun eða örútboð er góður kostur.

Hæfniflokkar A, B og C

Umtalsverður munur er á hæsta og lægsta verði og munar þar miklu um skiptingu í hæfniflokka A, B, og C.

FLOKKUR A

Þekking: Ráðgjafi hefur 0-3 ára gamla menntun á sínu sviði, að lágmarki BSc gráðu í upplýsingatækni.
Ræður við einföld verkefni.
Reynsla: Ráðgjafi hefur 1-3 ára reynslu á vinnumarkaði ásamt því að hafa tekið þátt í einu eða fleirum
álíka verkefnum og boðin eru.
Stjórnunarhæfni: Ráðgjafi þarf leiðbeiningar frá öðrum.
Sjálfstæði: Getur unnið einsamall einföld, vel afmörkuð verk.

FLOKKUR B

Þekking: Lágmarksmenntun er BSc gráðu í upplýsingatækni. Ráðgjafi er mjög hæfur og er með mjög
góða þekkingu á sínu sviði.
Reynsla: Að minnsta kosti 4 ára reynsla sem ráðgjafi. Hann er góð fyrirmynd annarra ráðgjafa. Hann hefur tekið þátt í og lokið stórum verkefnum í háum gæðaflokki.
Stjórnunarhæfni: Ráðgjafi getur borið ábyrgð á verkefnum í sínu sviði og verið í forystu í minni og millistórum hópum.
Sjálfstæði: Getur vel unnið sjálfstætt.

FLOKKUR C

Þekking: Lágmarksmenntun er Meistaragráða í upplýsingatækni eða sambærileg menntun. Hæfni í hæsta gæðaflokki og viðkomandi talinn sérfræðingur á sínu sviði.
Reynsla: Reynsla sem ráðgjafi með mörg stór unnin verkefni í háum gæðastaðli í ferilskrá sinni.
Stjórnunarhæfni: Hefur langa og umtalsverða reynslu sem stjórnandi og hefur unnið í leiðandi störfum.
Sjálfstæði: Mjög mikið.

Af hverju var þessu skipt svona upp?

Ástæðan er einföld, þetta er gert til að kaupendur geti náð sem hagstæðustu verði í þá þjónustu sem um ræðir. Dæmi: 40 tíma verk gæti skipst í 20 tíma sem aðili í hæfniflokki A gæti unnið, 15 tímar sem aðili í flokki í B gæti unnið og 5 tímar sem aðili í flokki C þyrfti að vinna í stað þess að allir 40 tímarnir myndu hugsanlega lenda í hæsta verðflokki.
Seljandi Tengiliður Sími Fax
Admon Ráðgjöf ehf. Arnaldur Axfjörð 530 8900
Advania Sigrún Ámundadóttir 5695100
Capacent Ingvi Þór Elliðason 540 1000
Deloitte hf. Þorvarður Gunnarsson 580 3000
Framnes ehf Bjarni Júlíusson 5878141
Gagnavarslan ehf. Laufey Ása Bjarnadóttir 553 1000
Hópvinnukerfi ehf. Hörður Olavsson 5400900
Hugsmiðjan ehf. Ragnheiður H. Magnúsdóttir 550 0900
Hugur / Ax ehf Örn Arason 5451000
Hugvit hf Kristján Karlsson 5103100
IT Ráðgjöf og hugbúnaðarþjónusta ehf Jón Jósef Bjarnason 5666077
Mannvit hf Haukur Garðarsson 4223000
Nýherji hf. Jón Kristinn Jensson 569-7700 569-7799
Opin Kerfi hf. Árni Þór Jónsson 570-1000 570-1001
Reynd ehf. Tryggvi Hafstein 512 4300
Sensa ehf. Sigurður Magnús Jónsson 414-1400 414-1440
Sjá viðmótsprófanir Jóhanna Símonardóttir 511 3110
Stiki ehf Bjarni Þór Björnsson 5700600
Trackwell hf Ingólfur Björnsson 5100600
Tölvu- og verkfræðiþjónustan ehf Halldór Kristjánsson 5209000
Tölvumiðlun ehf. Daði Friðriksson 545 5000
Unimaze ehf. Markús Guðmundsson 588 7575
Vefþjónustan Grétar Magnússon 512 4600
Viki ehf Heiðar Jón Hannesson 5616990
Þekking Sigurður Sæberg Þorsteinsson 460 3100 460 3101
Senda verðkönnun/fyrirspurn til tengiliða seljenda

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica