Ríkiskaup

Öryggisþjónusta

RK 14.25 Öryggisgæsla

Samningur gildir til 30.11.2012

Kaupendur geta skoðað kjör í samningi

með því að skrá sig inn hér til hliðar

Á döfinni

Nýr samningur tók gildi 1. desember 2010 og gildir í tvö ár.

Tegundir þjónustuViðskiptavinir sem þurfa á öryggisgæslu að halda hafa mismunandi óskir og þarfir. Sum fyrirtæki og stofnanir þurfa á mannaðri gæslu að halda, hvort sem er allan sólarhringinn, eingöngu á skrifstofutíma, eða eingöngu utan skrifstofutíma.
Hópur kaupenda þurfa fjarvöktun, þ.e. að öryggisfyrirtæki vakti búnað og sinni boðum frá búnaði á staðnum. Margir kaupenda þurfa farandgæslu, þ.e. öryggisverðir koma við á þeim stað sem vakta skal og ganga úr skugga um að gengið sé frá öllu og þess háttar. Samningnum er skipt í 4 (fjóra) yfirflokka og er þeim ætlað að ná yfir flestar algengustu tegundir vöru og þjónustu á þessu sviði.

Flokkur 1  Mönnuð öryggisgæsla – Gæsla með öryggisvörðum á staðnum á fyrirfram skilgreindum tímum
Mönnuð gæsla tekur til allrar gæslu þar sem krafist er viðveru öryggisvarða. Þetta getur verið viðvera öryggisvarðar á þeim stað sem vakta skal allan sólarhringinn, eingöngu á opnunartíma skrifstofu, utan opnunartíma skrifstofu eða á þeim tíma sem kaupandi óskar. Þessi flokkur tekur einnig til öryggisgæslu á ráðstefnum og fundum eða öðrum viðlíka atburðum þar sem óskað er eftir mannaðri öryggisgæslu í nánar tiltekinn tíma.

Flokkur 2  Vöktun öryggiskerfa frá stjórnstöðFjargæsla tekur til allrar þjónustu sem veitt er frá stjórnstöð öryggisfyrirtækis.
Algengast í þessum flokki er vöktun á búnaði sem er á þeim stað sem verið er að vakta og viðbrögð við boðum og útköllum frá þeim búnaði. Þessi þjónusta felur í sér tengingu við búnað sem er til staðar, viðhald á honum, prófanir á búnaði og vöktun. Við fjarvöktun skal vera í boði vöktun á brunaboðum, boðum um innbrot, vatnsleka, gasleka o.þ.h., en fjöldi búnaðareininga sem vaktað er í hverju tilviki eftir fer eftir óskum kaupanda hverju sinni. Hluti af þjónustu fjarvöktunar er að hafa samband við slökkvilið eða lögreglu í þeim tilfellum sem við á.

Flokkur 3  Búnaður til öryggisgæslu og annar eftirlitsbúnaðurBúnaður felur í sér allan búnað til öryggisgæslu sem kaupendur gætu þurft. Búnaður felur í sér m.a. eftirlitsmyndavélar til nota innandyra, eftirlitsmyndavélar til nota utandyra, reykskynjara, vatnsleka skynjara, gasleka skynjara, handslökkvitækja o.þ.h.

Flokkur 4  AnnaðHér er bjóðendum gefinn kostur á að tilgreina aðra vörur- og þjónustuþætt en fram koma í fyrstu þremur flokkunum, og telja má að komi kaupendum til góða í þessu sambandi, t.d. boð í brunaúttekt.

Innskráðir notendur geta skoðað nánari skiptingu í flokka og helstu kjör og afslætti.

Kynningarefni frá seljendum í rammasamningi


Skoðið einblöðunginn frá SKAFTFELLI


Seljandi Tengiliður Sími Fax
Eldvarnir Grindavíkur ehf. Einar Sveinn Jónsson 664 9112
Eldvörn ehf Björn Ólafsson 431 3244
Nortek ehf. Björgvin Tómasson 455 2000 455 2001
Ólafur Gíslason og Co hf. Benedikt E. Gunnarsson 568 4800
Securitas hf Jóhann Kolbeins 580 7000 580 7070
Skaftfell ehf. Ingimar Sigurðsson 588 9020
Öryggisfélagið ehf. Friðrik Sverrisson 511 5115
Öryggismiðstöð Íslands hf. Auður Lilja Davíðsdóttir 570 2400 570 2401
Senda verðkönnun/fyrirspurn til tengiliða seljenda

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica