RK 14.27 Grafísk hönnun
Samningur gildir til 30.4.2014
Kaupendur geta skoðað kjör í samningi
Á döfinni
Nýr rammasamningur um grafíska hönnun tók gildi 27. apríl 2011 og gildir í eitt ár með möguleika á framlengingu þrisvar sinnum í eitt ár í senn. Samningnum hefur verið framlengt öðru sinni um eitt ár til 30.04.2014Auglýsingastofurnar ENNEMM og Fabrikan ehf. framlengdu ekki 2012 og eru þar með dottnar úr samningi.
Stefánsson & Stefánsson hefur hætt rekstri auglýsingastofu frá 1.1.2012 og er því ekki lengur aðili að þessum rammasamningi.
Eftirtaldir þjónustuflokkar falla m.a. undir þennan samning. Athugið að listinn er ekki tæmandi.
| Textagerð og prófarkalestur Hönnun, myndvinnsla, logo Smáverk, auglýsingamerki Eyðublöð & prentgripir Rafræn eyðublöð Auglýsingaefni Kynningarefni; prentað, sjónvarp, rafrænt Skjáauglýsingar Bæklingar minni; 16 síður eða minni, A-5 brot eða 10x21 cm. (Túristabrot) Bæklingar stærri; Stærri bæklingar og skýrslur; 16 síður eða stærri t.d. A5, A4. | Flóknar skýrslur Bækur Útlitshönnun fyrir vefi Sýningar Annað s.s.: Hönnun heimasíðna Hönnun kynninga, ppt. Flash o.fl. Hönnun grafískra leikmynda Myndskreytingar/illustration Ljósmyndun og myndvinnsla |
FLOKKUR A
Þekking: Starfsmaður hefur lágmarksmenntun í grafískri hönnun og ræður við einföld verkefni.
Reynsla: Starfsmaður hefur að lágmarki 0-3 ára reynslu á vinnumarkaði.
Stjórnunarhæfni: Starfsmaður þarf leiðbeiningar frá öðrum.
Sjálfstæði: Starfsmaður getur sjálfstætt unnið einföld, vel skilgreind verk.
FLOKKUR B
Þekking: Starfsmaður hefur að lágmarki B.A gráðu í grafískri hönnun, er mjög hæfur og er með mjög góða þekkingu í grafískri hönnun
Reynsla: Starfsmaður hefur að lágmarki 0-3 ára reynslu á vinnumarkaði, er góð fyrirmynd annarra grafískra hönnuða, hefur tekið þátt í og lokið stórum verkefnum í háum gæðaflokki.
Stjórnunarhæfni: Starfsmaður getur borið ábyrgð á verkum og verið í forystu í minni og millistórum hópum.
Sjálfstæði: Getur vel unnið sjálfstætt.
FLOKKUR C
Þekking: Starfsmaður hefur framhalds háskólagráðu á stigum 3 og 4 eða kandidats- og meistaranám í grafískri hönnun. Hefur hæfni í hæsta gæðaflokki og er talinn sérfræðingur á sínu sviði.
Reynsla: Starfsmaður hefur unnið mörg stór verk í háum gæðastaðli.
Stjórnunarhæfni: Hefur langa og umtalsverða reynslu sem stjórnandi og hefur unnið í leiðandi störfum.
Sjálfstæði: Mjög mikið.
Af hverju var þessu skipt svona upp?
Ástæðan er einföld, þetta er
gert til að kaupendur geti náð sem hagstæðustum verðum í þá þjónustu
sem um ræðir. Dæmi: 30 tíma verk gæti skipst í 15 tíma sem aðili í
hæfniflokki A gæti unnið, 10 tímar sem aðili í flokki í B gæti unnið og 5
tímar sem aðili í flokki C þyrfti að vinna í stað þess að allir 30
tímarnir myndu hugsanlega lenda í hæsta verðflokki.
AFHENDING VERKEFNA
Kaupendur munu panta beint frá seljanda nema sérstaklega sé um annað samið. Boðin verð skulu miðast við að verkefni verði afhent seljanda á tölvutæku formi, sé því við komið.
Gert er ráð fyrir því að kaupendur afurðar grafískra hönnuða í fyrirhuguðum rammasamningi leiti sjálfir eftir verðtilboðum í vinnslu og frágang sem byggð eru á hönnuninni, s.s. prentun innan rammasamnings Ríkiskaupa.
Kaupandi öðlast allan notkunar/nýtingarrétt, fjölföldunar- og dreifingarrétt til ríkisaðila á þeirri hönnun sem keypt er samkvæmt rammasamningnum.
Seljendur skulu bjóða fram þjónustu sína eins fljótt og auðið er eftir að pöntun berst frá kaupanda. Seljendur skulu hverju sinni bjóða fram sína hæfustu hönnuði.
Afhending á þjónustu skal fara fram á þeim stað og stund sem umsamið er við pöntun. Hönnuðir skulu skila af sér verkefni innan þess tíma sem eðlilegur má teljast miðað við umfang verks og viðmið um framvindu.
Kaupandi skal upplýstur um alla verk- og efnisþætti í upphafi verks og skal seljandi tafarlaust gera grein fyrir breytingum sem upp kunna að koma á verktíma t.d. vegna tafa eða annarra ófyrirséðra þátta.
Verði tafir á afhendingu, eða ef gæði þjónustu eru minni en útboðslýsing gefur
tilefni til (t.d. ef prófarkarlestri er ábótavant), sem rekja má til seljanda, skal
kaupandi eiga kröfu á afslætti frá umsömdu verði eða endurgreiðslu kostnaðar
við lagfæringar.
Hvatt er til þess að kaupendur og seljendur noti sýnishorn af samningi um ráðgjafaþjónustu sem má finna á heimasíðu Ríkiskaupa .

| Seljandi | Tengiliður | Sími | Fax |
|---|---|---|---|
| Apon slf. | Jón Steinsson | 8453800/8648889 | |
| Argon ehf. | Sólveig Rolfsdóttir | 6923124 | |
| Athygli ehf. | Guðmundur Þorsteinsson | 515 5200 | |
| Auglýsingastofan Dagsverk ehf. | Kristján Þór Árnason | 588 1350 | |
| Expo Auglýsingastofa | Svanþór Laxdal | 515 4300 | |
| Hugsa sér ehf. | Einar Þ. Samúelsson | 552 2557 | |
| Ímyndunarafl ehf. | Gunnar R. Kristinsson | 694 7154 | |
| Pipar/TBWA (Eignarhald ehf) | Vigdís Jóhannsdóttir | 510 9000 | |
| Plánetan auglýsingastofa | Diljá Þórhallsdóttir | 517 3737 | |
| Port hönnun ehf. | Edda Valborg Sigurðardóttir | 515 1460 | |
| Prentsmiðjan Oddi hf. | Stefán Hjaltalín | 515 5000 | 515 5001 |
| Vinnustofa Atla Hilmarssonar | Elín Steinsdóttir / Hörður Lárusson | 551 1443 | |
| Senda verðkönnun/fyrirspurn til tengiliða seljenda | |||