Ríkiskaup

Flugsæti - Millilandafargjöld

RK 14.28 Flugsæti - Millilandafargjöld

Samningur gildir til 30.6.2012

Kaupendur geta skoðað kjör í samningi

með því að skrá sig inn hér til hliðar

Á döfinni

Nýr samningur um flugfargjöld til og frá Íslandi tekur gildi 1. júlí 2011 og gildir í eitt ár.

Samið var um flugsæti til og frá Kaupmannahöfn, London, Brussel, New York og Boston.

Rammasamningurinn, sem er liður í því að draga úr ferðakostnaði en áður hefur verið unnið í því að fækka ferðum og breyta fyrirkomulagi ferða á vegum ráðuneyta og ríkisstofnana, tryggir ríkisstarfsmönnum hagstæð kjör á flugsætum til og frá landinu, óháð ferðatíma.

Icelandair býður fastan afslátt á öllum fimm leiðunum og Iceland Express býður föst verð á fjórum leiðum, þ.e. öllum nema til Brussel. Auk þessa geta aðilar að rammasamningum ætíð nýtt sérstök tilboð flugfélaganna tveggja ef slíkt reynist hagstæðara.

Mikilvægt er að starfsmenn gefi upp kennitölu viðkomandi stofnunar við bókun til að tryggja að umsaminn kjör skili sér til kaupenda.

Nánari upplýsingar um samninginn

ICELAND EXPRESS

Viðskiptavinir Iceland Express hafa aðgang að rammasamningskjörum í bókunarkerfi fyrirtækisins í gegnum sérstaka vefsíðu. Linkur á bókunarsíðuna er aðgengilegur innskráðum notendum undir helstu kjör og afslættir. Þar munu kaupendur fá aðgangsorð og lykilorð sem gerir þeim kleift að bóka flugsæti.
Farþega er heimilt að taka 20 kg. í innrituðum farangri og 10 kg. í handfarangri. 

Kaupendur eru hvattir til að nota kort (kreditkort/innkaupakort) til að greiða fargjöld fyrir starfsmenn sína vegna trygginga sem fylgja bókun með kreditkortum. Einnig verður möguleiki fyrir kaupendur að vera í reikningsviðskiptum við Iceland Express.
Einnig má bóka beint hjá  Viðskiptaferðir@icelandexpress.is   eða í síma 5500600
Kaupendur sem bóka farmiða hjá þjónustufulltrúa greiða aukagjald.


ICELANDAIR

Bókanir fara fram í gegnum sérstaka bókunarvél Icelandair. Linkur á bókunarvélina er aðgengilegur innskráðum notendum undir helstu kjör og afslættir. Til að bóka flugsæti á kjörum samnings þurfa stofnanir að hafa svokallaðan DD kóða sem Icelandair úthlutar stofnunum.
Einnig er hægt að bóka símleiðis hjá Viðskiptasöludeild Icelandair. Síminn er 50 50 757

Stofnanir sem þegar eru með DD kóða skv. eldri samningi við Icelandair geta notað hann áfram.
Tengiliðir hjá Icelandair veita nánari upplýsingar:

Sigríður Björnsdóttir  - sigga@icelandair.is   - S. 5050168
Anna Jóhanna Alfreðsdóttir  - annaa@icelandair.is   -  S. 5050548

Seljandi Tengiliður Sími Fax
Iceland express Hanna Magnúsdóttir 550 0600
Icelandair Sigríður Björnsdóttir 5050 300
Senda verðkönnun/fyrirspurn til tengiliða seljenda

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica