RK 14.20 Lögfræðiráðgjöf
Samningur gildir til 3.7.2012
Kaupendur geta skoðað kjör í samningi
með því að skrá sig inn hér til hliðar
Á döfinni
Nýr samningur tók gildi 2. júlí 2010 og gildir í tvö ár.Lögmannsstofan Regula hefur hætt rekstri og er því ekki lengur aðili að þessum rammasamningi !
Hvaða þjónusta fellur undir þennan samning?
Í þessum samningi um lögfræðiþjónustu er gott úrval af færu fólki og bæði litlar sem stórar lögfræðistofur, sem gefur kaupendum möguleika á að velja þjónustuaðila við hæfi.
| Almannatryggingar/örorkubætur ofl. Almenn lögfræðiþjónusta Barnaréttur Barnaverndarréttur/barnaverndarmál Bygginga- og skipulagslöggjöf Eignaumsýsla Evrópu-réttur Fasteignir Fjármögnun/kaupleigusamningar Fjarskiptaréttur Flugréttur Flutninga- og sjóréttur | Greiðsluerfiðleikar Hlutafélög/einkahlutafélög ofl. Hugverkaréttur/höfundaréttur Innheimtur Landbúnaðarréttur Lögfræði fjármálafyrirtækja Mannréttindi Neytendavernd Samkeppnisréttur Samningaréttur/samningagerð Samningurinn um EES Sáttamiðlun | Skaðabótaréttur/slysamál Skattaréttur Stjórnskipunarréttur/stjórnarskrá Stjórnsýsluréttur Sveitastjórnarréttur Umhverfisréttur Upplýsingatækni Útlendingar Vátryggingaréttur Veðréttur Verktakaréttur/verksamningar og útboð Vinnuréttur/vinnumarkaðsréttur |
Hæfniflokkar A, B og C
FLOKKUR A
Þekking: Ráðgjafi hefur 0-3 ára gamla menntun á sínu sviði, að lágmarki BSc gráðu í lögfræði.
Ræður við einföld verkefni.
Reynsla: Ráðgjafi hefur 1-3 ára reynslu á vinnumarkaði ásamt því að hafa tekið þátt í einu eða
fleirum álíka verkefnum og boðin eru.
Stjórnunarhæfni: Ráðgjafi þarf leiðbeiningar frá öðrum.
Sjálfstæði: Getur unnið einsamall einföld, vel afmörkuð verk.
FLOKKUR B
Þekking: Lágmarksmenntun er BSc gráðu í lögfræði. Ráðgjafi er mjög hæfur og er með mjög góða þekkingu á sínu sviði
Reynsla: Að minnsta kosti 4 ára reynsla sem ráðgjafi. Hann er góð fyrirmynd annarra ráðgjafa. Hann hefur tekið þátt í og lokið stórum verkefnum í háum gæðaflokki.
Stjórnunarhæfni: Ráðgjafi getur borið ábyrgð á verkefnum í sínu sviði og verið í forystu í minni og millistórum hópum. Sjálfstæði: Getur vel unnið sjálfstætt.
FLOKKUR C
Þekking: Lágmarksmenntun er Meistaragráðu eða Cand.jur. ásamt málflutningsréttingum í lögfræði. Hæfni í hæsta gæðaflokki og viðkomandi talinn sérfræðingur á sínu sviði.
Reynsla: Reynsla sem ráðgjafi með mörg stór unnin verkefni í háum gæðastaðli í ferilskrá sinni.
Stjórnunarhæfni: Hefur langa og umtalsverða reynslu sem stjórnandi og hefur unnið í leiðandi störfum.
Sjálfstæði: Mjög mikið.
Ástæðan er einföld, þetta er gert til að kaupendur geti náð sem hagstæðustu verði í þá þjónustu sem um ræðir. Dæmi: 40 tíma verk gæti skipst í 20 tíma sem aðili í hæfniflokki A gæti unnið, 15 tímar sem aðili í flokki í B gæti unnið og 5 tímar sem aðili í flokki C þyrfti að vinna í stað þess að allir 40 tímarnir myndu hugsanlega lenda í hæsta verðflokki.
ATH - LVA Lögmenn við Austurvöll heita nú CATO Lögmenn
