Almennt um rammasamninga

Almennt um rammasamninga

Rammasamningakerfi Ríkiskaupa

hefur nú verið rafvætt og þjónar því kaupendum betur en fyrr með aðstoð veraldarvefsins.  Heimasíða Ríkiskaupa gegnir þar mjög mikilvægu hlutverki. Þar er nú að finna yfirlit yfir alla samninga og helstu upplýsingar um þá svo sem  hver er verkefnisstjóri viðkomandi samnings ásamt gildistíma samningsins. Auk þessa er hægt að skoða undirflokka og sjá við hvaða birgja samningar eru í gildi, hvort þeir eru með vörulista á Rafrænu markaðstorgi (RM),  hver tengiliður birgjans er og netföng og símanúmer á þann tengilið. Ítarlegri upplýsingar svo sem um kjör og ákvæði samningsins geta þeir sem aðgang hafa af RM skoðað í gegnum heimasíðu RM.

Velta rammasamninga Ríkiskaupa jókst verulega milli áranna 2003 og  2004. Mestu munar um aukningu í sölu olíu og eldsneytis fyrir bifreiðar; matvælasamningurinn er einnig að festa sig í sessi og kaup á heilbrigðisvörum í samningum hefur sömuleiðis aukist mikið eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. 

Upplýsingatæknin með RM og Innkaupakort ríkisins (IK) í fararbroddi hefur breytt verulega aðgengi notenda að rammasamningakerfinu.  Velta rammasamninga á RM nam um 100 milljónum króna 2004 en IK um  124 milljónum innan rammasamningakerfisins.

Markmið um 30%  veltuaukningu í rammasamningum á ári náðust því sem næst og var aukningin nær eingöngu í fyrirliggjandi samningum.  Áberandi er að stórir notendur velta nú mun meiru en áður og eftir því sem vöru- og þjónustuflokkum fjölgar höfðar kerfið til fleiri notenda. Í dag uppfyllir það t.d. mjög vel þarfir vegna almenns skrifstofuhalds auk þess að sinna vel þörfum heilbrigðisgeirans.  

Fyrir fáum misserum var samningur um tölvur, jaðartæki og skyldan búnað um helmingur af umsvifum rammasamningakerfisins í krónum talið sem er mjög að breytast. Samningar í matvöru eru í mikilli þróun þótt einungis sé verið að sinna nýlenduvöruhluta þess vöruflokks. Ferskmetið þ.e. kjöt, fiskur og grænmeti er alfarið utan kerfisins en í náinni framtíð með nýrri rafrænni tækni þar sem hægt er að setja á fót upp- eða niðurboð verður hægt að bjóða upp á rammasamninga á þessu sviði.

Flokkur sem vaxið hefur mjög ört eru olíuvörur.  Útboð fór fram fyrir skip og flugvélar á árinu og er reiknað með að umsvif þess samnings haldi áfram að vaxa. Síðast en alls ekki síst er heilbrigðisvöruflokkurinn. Velta hans hefur um það bil tvöfaldast ár hvert undanfarin ár. Þar er mikið svigrúm enn til að bjóða út. Gott samstarf við Landspítala – háskólasjúkrahús og Innkaupastofu heilbrigðisstofnana þar sem þeir leggja til sérþekkingu í innkaupum nýtist öllum minni heilbrigðisstofnunum í þeirra innkaupum og hefur það leitt til sparnaðar og hagræðis fyrir þær með betri samningum.

Árið 2004 var mikið umbreytingaár rammasamningakerfis Ríkiskaupa. Hafinn var undirbúningur að því að gera rammasamninga rafræna og náðist það markmið að 1. janúar 2005 urðu þeir samningar sem henta beint til rafrænna viðskipta rafrænir. Um er að ræða alls 104 af 167 samningum. Verið er að skoða aðra samninga sem ekki eru “raftækir” án meiri aðlögunar en til dæmis verða leigubílar seint pantaðir á rafrænan hátt.  Ákveðið var að jafnframt að  “möppukerfið” yrði lagt niður. Óhætt er að segja að flestir hafi fagnað því.

 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.