Lögfræðiráðgjöf

Lögfræðiráðgjöf

Lögfræðiþjónusta Ríkiskaupa veitir ráðgjöf um framkvæmd útboða, innkaupareglur sem eru í gildi og fara ber eftir, ásamt því að veita viðskiptavinum innsýn í lög og reglur EES.

Með gildistöku EES-samningsins gengu í gildi margvíslegar reglur varðandi útboð og framkvæmd þeirra innan Evrópska efnahagssvæðisins. Sambærilegar reglur gilda um útboð innanlands með örlitlum áherslumun á tilboðstíma og lágmarksupphæð kaupa sem boðin skulu út. Innan EES skal bjóða út ríkiskaup er ná 11 milljónum króna á ársgrundvelli í hverri vörutegund en fyrir sveitarfélögin er lágmarksupphæðin 15,8 milljónir. Þetta þýðir að ef ákveðin stofnun þarf að fara í vörukaup er áætluð eru hærri en 11 milljónir á ársgrundvelli, þá ber þessari stofnun skylda til að bjóða kaupin út á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Þá skal það auglýst í EB-stjórnartíðindum og TED (Tenders Electronic Daily) rafræna útboðsgagnabankanum. Lögfræðiþjónustan leiðbeinir viðskiptavinum Ríkiskaupa um framkvæmd útboða skv. innlendum reglum og reglum EES.

Námskeið og ráðgjöf

Ríkiskaup halda reglulega námskeið um lög og reglur útboða hérlendis og á Evrópska efnahagssvæðinu. Er það hlutverk þessara námskeiða að miðla einhverri af þeirri þekkingu sem skapast hefur innanhúss hjá Ríkiskaupum um reglur, reglugerðir og lög er tengjast framkvæmd útboða á EES. Einnig eru haldin innkaupanámskeið fyrir innkaupastjóra eða þá sem starfa við innkaup mikinn hluta af sínum vinnudegi. Slík námskeið hafa hjálpað innkaupafólki að leysa ákveðin vandamál sem eru sameiginleg öllum innkaupum. Lögfræðideild Ríkiskaupa veitir ráðgjöf um útboð og innkaup frá lagalegu sjónarmiði. Jafnframt er veitt ráðgjöf um útboðs- og innkaupaferlið sjálft, t.d. efnisleg atriði varðandi val á vörum í rammasamningi. Slíka ráðgjöf veitir Ráðgjafasvið Ríkiskaupa.

Yfirlit yfir lög og reglur

 

 

Lög og reglur

Réttarheimild

Réttarheimild.is er yfirlitssíða þar sem hægt er að nálgast helstu lagagögn og réttarheimildir, s.s. lög og reglugerðir, dóma, stjórnvaldsúrskurði, alþjóðasamninga, niðurstöður alþjóðadómstóla og fleira.





 

 

 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.