Innkaupaþjónusta
Innkaupaþjónusta
Ríkiskaup hafa frá upphafi stundað öfluga innkaupastarfsemi. Innkaupaþjónustan hefur tekið miklum breytingum í gegnum tíðina og nú er hún skipulögð í samræmi og samstarfi við útboðsþjónustu Ríkiskaupa. Ennfremur stendur innkaupaþjónusta Ríkiskaupa fyrir sameiginlegum innkaupum fyrir opinberar stofnanir í formi rammasamninga.
Innkaupadeild annast innkaupaþjónustu Ríkiskaupa og skiptist hún í fjóra mismunandi þætti:
Verðkönnun
Verðkönnun kallast sú þjónusta Ríkiskaupa sem veitt er opinberum stofnunum og sveitarfélögum og felst í að finna hvar unnt er að afla ákveðinnar vöru og hvað hún kostar. Þar með er tekinn allur kostnaður við að koma vörunni í hendur kaupanda. Oft vinna ríkisstofnanir sjálfar þessa vinnu að hluta til eða að öllu leyti en þá nýtir stofnunin innflutningsþjónustu Ríkiskaupa.
Innflutningsþjónusta
Innflutningsþjónusta Ríkiskaupa felst í því að:
- panta vöru fyrir kaupanda
- velja flutningsaðila
- meta hvort tryggja þurfi vöruna í flutningi
- aðstoða við að tollafgreiða vöruna og verðleggja vöruna
- sjá um afhendingu til viðskiptavinar
- sjá um greiðslur til seljanda, flutningsaðila og tollyfirvalda.
Einnig sjá Ríkiskaup um að fylgja pöntuninni eftir og öll samskipti við seljanda s.s. að krefjast staðfestinga o.þ.h. Innflutningsþjónusta Ríkiskaupa nær yfir alla þætti er snúa að innflutningi á vöru hingað til lands.
Tollafgreiðsla
Margar stofnanir sjá um að finna, panta og flytja inn vörur sínar sjálfar. Komi upp vandkvæði við tollafgreiðslu vöru bjóða Ríkiskaup aðstoð við úrlausn mála. Ríkiskaup sjá þá um tollafgreiðslu og verðlagningu, afhendingu til viðskiptavinar sem og greiðslur til seljanda, flutningsaðila og tollyfirvalda, allt eftir því hvað við á og kaupandinn óskar eftir. Öll samskipti við tollayfirvöld eru pappírslaus og eru tollskýrslur sendar með EDI-skeytum.
Endursendingar
Ríkiskaup taka að sér að aðstoða kaupanda ef upp koma vandræði með vöru, hún reynist gölluð eða gera þarf við hana. Varan er þá endursend til leiðréttingar eða viðgerðar. Ef senda þarf vöru til seljanda sjá Ríkiskaup um útfyllingu útflutningspappíra, samskipti við seljanda og innflutning á vörunni úr viðgerð.
Bæklingur um innkaupaþjónustu Ríkiskaupa

