Útgefið efni

Fræðslurit Ríkiskaupa - Innkaupakortið

Upplýsingar fyrir kaupendur um kosti Innkaupakorts ríkisins

Fradslurit_Rikiskaupa_Innkaupakort

Ríkiskaup hafa gefið út upplýsingarit um Innkaupakort ríkisins. Prenteintök af ritinu liggja frammi í afgreiðslu Ríkiskaupa í Borgartúni 7c en einnig get áhugasamir hlaðið niður PDF útgáfu af því hér með því að smella á táknmyndina.

VINSAMLEGAST KYNNIÐ YKKUR BREYTT KJÖR

Á INNKAUPAKORTINU FRÁ 1. MAÍ og 1. JÚNÍ 2010

Kreditkort tilkynntu um breytta gjaldtöku á innkaupakorti ríkisins frá 1. maí sl. með bréfi til allra stofnana.

Nýtt fjármagnsgjald 1% á hverja færslu var sett á 1. maí 2010

Árgjald af Innkaupakortum ríkisins er innheimt frá 1. júní 2010 kr. 2.900,-

Önnur gjöld, s.s. úrvinnslu- og uppgjörsgjöld leggjast á innkaupakort ríkisins skv. gjaldskrá Kreditkorta, sjá nánar á www.kreditkort.is

Tryggingar á innkaupakortinu fylgja almennum tryggingaskilmálum sem skoða má í bæklingnum og á heimasíðu Kreditkorta.

Þeim stofnunum sem hyggjast skipta um kort er bent á að skoða verðskrá á vef viðskiptabankanna og fara vandlega yfir þau kjör og tryggingar sem þar eru í boði eða hafa samband beint við kortadeildirnar, kanna framboðið og fá tilboð.

 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.