LEIÐBEININGAR UM NÝSKÖPUN Í OPINBERUM INNKAUPUM
10 þættir vandaðra vinnubragða
Leiðarvísir þessi er þýðing á handbók ESB sem ber heitið Innovation Handbook Procurement.
Úr inngangi:
"Í þessum leiðarvísi er áhersla lögð á opinber innkaup sem hluta umfangsmeiri nýsköpunaráætlunar og útskýrt hvernig opinber innkaup geta hvatt til nýsköpunar. Hann kemur til viðbótar fyrri og núverandi aðgerðum sem hvetja til umhverfistækni í opinberum innkaupum.
Frekari aðgerðir eru á dagskrá er varða ónýtt tækifæri í Evrópu í innkaupum hjá rannsókna- og þjónustustofnunum þar sem ávinningi og kostnaði er deilt á milli yfirvalda og seljenda (þ.e. „pre-commercial procurement“). Í því sambandi er mikilvægt að fram komi að innkaupastefna nægir ekki ein og sér til að hvetja til frekari nýsköpunar. Önnur skilyrði verða að vera fyrir hendi.
Til að ná sem mestum áhrifum verða opinber innkaup til nýsköpunar að vera hluti almennrar stefnu í opinberum innkaupum. Þörf er á kerfi sem ýtir undir fræðslu, rannsóknir, fjármögnun, þekkingarmiðlun og stuðning við lítil fyrirtæki, meðferð hugverkaréttar og hágæðaregluverk. Hugvitssamleg framkvæmd opinberra innkaupa getur stutt við nýtingu nýstárlegra afurða, verkefna og þjónustu. Að því leyti hjálpa þau til við að koma á hagstæðum skilyrðum fyrir stofnun nýrra markaða, sér í lagi í opinberri þjónustu.
Í aðgerðaáætlun um tækni á sviði umhverfismála (COM (2004) 38 final) hefur framkvæmdastjórnin þegar greint möguleika sem felast í opinberum innkaupum til að hvetja til þess að markaðurinn taki upp umhverfistækni og lagt til að rannsakaðir verði möguleikar á að hvetja til tækni á sviði umhverfismála með opinberum innkaupum. G
efin hefur verið út handbók um opinber innkaup í umhverfismálum og nefnist hún Buying Green! Á meðal væntanlegra verkefna er tillaga að orðsendingu um umhverfisvæn opinber innkaup þar sem lögð eru fram valfrjáls stefnumið og tæki fyrir umhverfisvæn opinber innkaup um alla Evrópu.
Þessi leiðarvísir er tillaga nefnda framkvæmdastjórnarinnar og telst ekki bindandi fyrir stofnunina á neinn hátt. Einnig skal tekið fram að leiðarvísirinn er háður breytingum á starfsaðferðum framkvæmdastjórnarinnar og lögum Evrópudómstólsins.
LEIÐBEININGAR UM NÝSKÖPUN Í OPINBERUM INNKAUPUM
