Útgefið efni
Fræðsluröð Ríkiskaupa 2009
Hvernig notum við rammasamninga?
Ríkiskaup hafa gefið út upplýsingarit um Fræðsluröð Ríkiskaupa 2009. Fræðsluröðin ber yfirskriftina, "Hvernig notum við rammasamninga" og hefur það að meginmarkmiði að að efla þekkingu innkaupafólks á rammasamningum, innihaldi þeirra og notagildi og ná þannig fram auknum krafti til hagkvæmra innkaupa.
Ríkiskaup kappkosta að halda reglulega fræðslu- og kynningarfundi um hagnýt málefni á sviði opinberra innkaupa.
Þá bjóða Ríkiskaup einnig upp á starfstengd námskeið þar sem farið er yfir framkvæmd útboða, lög og reglur um opinber innkaup ásamt greiningu og skipulagi innkaupa.
Langtímamarkmið er að til verði réttindanám fyrir innkaupafólk á borð við það sem boðið er uppá t.d. í Bretlandi. Enn er þó langt í land að það markmið verði að veruleika hér á landi.
Þangað til gegna Ríkiskaup því hlutverki að fræða og upplýsa innkaupafólk, sem sér um dagleg innkaup á rekstrar- og neysluvörum í stofnunum og fyrirtækjum hins opinbera, um hvernig hægt er að ná fram sparnaði og hagræðingu með notkun rammasamninga.
Þessum bæklingi er ætlað gefa yfirlit yfir kynningar og námskeið sem Ríkiskaup bjóða upp á vorið 2009. Einnig er hægt er að kynna sér innihald og skipulag námskeiða og funda, markmið þeirra og hverjum þau eru ætluð á vef Ríkiskaupa.

