Upplýsingabæklingur um örútboð
Ertu að velta fyrir þér örútboðum?
Ríkiskaup hafa gefið út upplýsingarit um framkvæmd örútboða. Ritinu er ætlað vera til upplýsinga fyrir opinbera kaupendur sem eru að velta fyrir sér örútboðum innan rammasamnings. Bæklingurinn liggur frammi í afgreiðslu Ríkiskaupa en einnig má nálgast ritið á PDF formi hér á vef Ríkiskaupa.
Í þeim tilfellum þar sem um er að ræða mikið magn, langan afhendingatíma eða umfangsmikla þjónustu, er tilvalið að nýta örútboð til að ná fram hagstæðari kaupum og kjörum innan rammasamningsins með samkeppni milli birgja eða þjónustuaðila.
Hefðbundinn ferill örútboða er eftirfarandi:
1. Þörfin skilgreind
2. Útboðsgögn útbúin (Sjá meðfylgjandi)
3. Útboðstilkynning send út á alla seljendur innan viðkomandi rammasamnings
4. Útboðsgögn afhent
5. Tímarammi er enginn en því meiri tími sem bjóðendum er gefinn, því betra
6. Fyrirspurnir og svör - oft afgreidd á einum fundi
7. Tilboð opnuð
8. Lögum um opinber innkaup er fylgt við úrvinnslu, utan 10 daga kyrrstöðu tímabils
Sjá einnig Leiðbeiningabækling um kaup á ráðgjöf og þjónustu
