Nýr rammasamningur um tölvur og tengdan búnað
Samningurinn mun skila opinberum stofnunum og fyrirtækjum umtalsverðum afslætti af þessum flokkum; allt að 28% af
borð- og fartölvum og frá 22 - 30% afslætti af rekstrarvöru.
Samningurinn var undirritaður í húsakynnum Ríkiskaupa 15. september að undangengnu útboði þar sem 13 tilboð bárust.
Samið var til tveggja ára við fjóra aðila, EJS, Nýherja, Opin kerfi og Tölvulistann.
Samningurinn tekur til eftirfarandi vöruflokka:
Borðtölva, fartölva skjáa, netþjóna, prentara, skjávarpa, rekstrarvara og gagnageymsla.
Hægt verður að panta þessar vörur á rafræna markaðstorginu og þar má einnig finna,samninginn í heild sinni með öllum nauðsynlegum upplýsingum um kjör í samningnum.
Þann 10. október n.k munu Ríkiskaup kynna samninginn nánar. Kynningin verður á Grand Hótel, Sigtúni og fá kaupendur þar tækifæri til að hitta seljendur og fá upplýsingar og ráðgjöf um búnað í samningnum.
Allar nánari upplýsingar um kynningarfundinn og um rammasamninga almennt er að fá á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is
Ríkiskaup veita opinberum stofnunum og fyrirtækjum margvíslega ráðgjöf og þjónustu
Á vordögum efndu Ríkiskaup f. h. Landhelgisgæslu Íslands til lokaðs útboðs í kjölfar forvals vegna smíði á nýju varðskipi fyrir LHG. Í forvalinu var auglýst eftir þátttakendum í lokað útboð og urðu eftirtaldir aðilar fyrir valinu;
Aker frá Noregi, Asmar frá Chile, Bergen frá Noregi, Damen frá Hollandi, Peene-Werft frá Þýskalandi og SIMEK frá Noregi.
Tilboð voru opnuð 21. september að viðstöddum aðilum frá öllum bjóðendum og er stefnt að undirritun samnings um miðjan nóvember.
Fréttir af þessu útboði og allar upplýsingar um þjónustu og ráðgjöf Ríkiskaupa eru á vef fyrirtækisins www.rikiskaup.is
