Ríkiskaup
Skrifstofan og skólinn

Skrifstofan og skólinn

17.1.2011

Málaflokkar

Undir þennan viðburð/fræðslulínu falla rammasamningar sem snúa að daglegum rekstri skrifstofu og skóla. Vörukaupasamningar um ritföng og pappír, blandaðir samningar s.s. kaup á prentþjónustu, prentlausnum og ljósritunarvélum og skyldum búnaði, auk  samninga um kaup á tækjum og húsbúnaði  s.s. hluti raftækjasamnings og húsgagnasamnings.

Þeir samningar sem hér eru taldir, að samningi um viðhaldsþjónustu undanskildum, veltu  tæplega 500 milljónum á árinu 2009 sem er um 8% af ársveltu rammasamningskerfisins það ár.

Næsti viðburður

September 2011 - „Skrifstofan og skólinn“
Haldin verður ein  stór kynning í september með þátttöku seljenda fyrir þennan málaflokk. Ekki er þörf á sérstökum kaupendafundum á árinu og engir ný útboð eru í farvatninu undir þessum flokki þannig að ekki er þörf fyrir seljendafundi/kynningar á tímabilinu.

Aðaláherslan 2011 verður á  aukið upplýsingaframboð um samninga  á  vef sérstaklega um prentþjónustu sem er nýr samningur og um prentlausnir þar sem mikil tækifæri eru til langtímasparnaðar fyrir kaupendur og mikil tækifæri til söluaukningar fyrir seljendur.

Eldri viðburðir

Smelltu á tenglana hér fyrir neðan til að skoða dagskrá, glærur og kynningarefni frá fyrri árum.

Skrifstofan og skólinn - haust 2011






 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica