Rekstur bifreiða og fasteigna
Málaflokkar
Undir þennan viðburð/fræðslulínu falla vörukaupasamningar sem snúa að daglegum rekstri og viðhaldi bifreiða og fasteigna s.s. samningar um hreinlætisefni, plastvörur, byggingavörur ofl. Einnig samningar um kaup á tækjum og húsbúnaði eins og hluti raftækjasamnings og húsgagnasamnings.
Við höfum einnig kosið að láta samninga um samgöngur og flutninga falla undir þennan viðburð. Hér er átt við eldri þjónustusamninga um leigubílaþjónustu, bílaleigu- og sendibílaþjónustu auk vöruflutninga.
Samningar um raforku- og eldsneytiskaup eru einnig kynntir á þessum viðburði. Nýir þjónustu- og ráðgjafarsamningar s.s. samningar um viðhald á fasteignum ríkisins á höfuðborgarsvæðinu, samningur um öryggisþjónustu og samningur um þjónustu sérfræðinga í umhverfis- skipulags- og byggingamálum falla líka undir þessa fræðslulínu. Síðast en ekki síst er hér einnig tækifæri til að kynna fyrirkomulag á bifreiðakaupum ríkisins 2011.
Þeir samningar sem hér eru taldir, að samningi um Bifreiðakaup ríkisins undanskildum veltu um 1,2 milljarði árið 2009 sem er um 32% af ársveltu rammasamningskerfisins það ár.
Ráðstefnur og kynningar
Eldri viðburðir
Smelltu á tenglana hér fyrir neðan til að skoða dagskrá, glærur og kynningarefni frá fyrri árum.
15. febrúar 2011 - „Rekstur bifreiða og fasteigna“