Hvernig notum við rammasamninga ?
Fræðsla og viðburðir 2011
Áfram verður unnið með þá viðburði sem hafa verið í mótun sl. þrjú ár; þ.e. „Skrifstofan og skólinn“, „Rekstur bifreiða og fasteigna“, Eldhúsdag Ríkiskaupa“, „UT og fjarskipti“. Þjónustu- og ráðgjafarsamningum verði fundinn staður í þessum viðburðum, eftir því sem við á, en að auki verði bætt við einni fræðslulínu undir heitinu; „Sérfræðiráðgjöf og þjónusta“ þar sem kynntir verða nýir rammasamningar um sérfræðiráðgjafaþjónustu og þjónustusamningar s.s. gisting og veitingar, auk eldri þjónustusamninga um túlka- og þýðingaþjónustu ofl.
Eitt megin markmiðið með þessari framsetningu fræðsluviðburða eða fræðslulína er að sinna þörfum og kröfum markaðarins og kaupenda. Þannig er einnig auðveldlega hægt að gera ákveðnum samningum góð skil og aðrir samningar sem ekki þurfa sérstaka kynningu fljóta með og njóta góðs af.
Fyrirkomulag þessara viðburða verður mismunandi eftir aðstæðum og umfangi, ýmist með þátttöku seljenda eða minni viðburðir og kaupendakynningar. Stefnt er að því að hafa stærri viðburði með þátttöku seljenda annað hvert ár eða eftir því sem umhverfið kallar á. Þannig var t.d. „Skrifstofan og skólinn“ haldin í húsakynnum Ríkiskaupa 2010 fyrir valinn hóp kaupenda og því áætlað að halda stærri viðburð haustið 2011. Lögð verður áhersla á að draga fram vistvæn atriði samninga þar sem það á við. Reynt er koma til móts við þarfir viðskiptavina, jafnt kaupenda sem seljenda og jafnframt taka tillit til líftíma og reksturs einstakra samninga eða samningsflokka.
Á árinu 2011 verða haldnar verða 3 stærri kynningar með þátttöku seljenda þ.e. „Rekstur bifreiða og fasteigna“ 15. febrúar, „Skrifstofan og skólinn“ í september og „Eldhúsdagur 2011“ í nóvember. Þá verða haldnar smærri kynningar og kaupendafundur vegna „UT og fjarskipti“ að hausti í húsakynnum Ríkiskaupa. Unnið er að kynningaráætlun fyrir þjónustu- og ráðgjafarsamninga í samvinnu við ráðuneytin og seljendur.Efni frá kynningarfundum
Skrifstofan og skólinn 2011Á DÖFINNI
Innkaupadagurinn 2011 í Hörpu 29. nóvember
Ertu með hugmynd að kynningu ? Sendu okkur línu: birna@rikiskaup.is
Markaðsáætlun rammasamninga 2011
Viðskiptaþróunarsvið hefur gefið út samantekt um markaðsaðgerðir vegna rammasamninga fyrir árið 2011.
Ritið er að finna á vef Ríkiskaupa undir útgefið efni
