Innkaupakort

Um Innkaupakort ríkisins

Innkaupakort ríkisins er greiðslu- og kreditkort fyrir opinberar stofnanir

Innkaupakort ríkisins er greiðslu- og kreditkort fyrir opinberar stofnanir.

Innkaupakort

Að gefnu tilefni vilja Ríkiskaup vekja athygli stofnana á eftirfarandi breytingum sem orðið hafa á Innkaupakorti ríkisins: 

BREYTT KJÖR Á INNKAUPAKORTINU FRÁ 1. MAÍ og 1. JÚNÍ 2010

Kreditkort tilkynntu um breytta gjaldtöku á innkaupakorti ríkisins frá 1. maí sl. með bréfi til allra stofnana.

Nýtt fjármagnsgjald 1% á hverja færslu var sett á 1. maí 2010

Árgjald af Innkaupakortum ríkisins er innheimt frá 1. júní 2010 kr. 2.900,-

Önnur gjöld, s.s. úrvinnslu- og uppgjörsgjöld leggjast á innkaupakort ríkisins skv. gjaldskrá Kreditkorta, sjá nánar á www.kreditkort.is

Tryggingar á innkaupakortinu fylgja almennum tryggingaskilmálum sem skoða má í bæklingnum og á heimasíðu Kreditkorta. Neðangreindir tryggingaskilmálar Innkaupakorts ríkisins haldast óbreyttir.

Þeim stofnunum sem hyggjast skipta um kort er bent á að skoða verðskrá á vef viðskiptabankanna og fara vandlega yfir þau kjör og tryggingar sem þar eru í boði eða hafa samband beint við kortadeildirnar, kanna framboðið og fá tilboð.

Sem dæmi um þjónustu sem stofnanir geta fengið í viðskiptabönkunum má nefna eftirfarandi frá Landsbanka Íslands:

1. Skipta þarf um kort, nýjar umsóknir og undirskriftir

2. Sama færslusíða

3. Velja þarf í felliglugga "Innkaupakort Landsbankans" í stað "Innkaupakort ríkisins"

4. Stillingar á færslusíðu "Innkaupakorts ríkisins" verður afritað á færslusíðu "Innkaupakorts Landsbankans"

5. Engin breyting verður á rafrænum sendingum til ORRA

6. Ýtarupplýsingar bak við reikninga eru eins milli korta

7. Úttektartímabil og gjalddagi er sá sami

8. Eldri upplýsingar verða áfram aðgengilegar á færslusíðu Innkaupakorts ríkisins

Ferðatryggingar Sjóvá með Innkaupakorti

 Á þessari vefslóð má finna allar upplýsingar varðandi vátryggingarskilmála

 http://www.sjova.is/files/2009_5_19_MC%20Innkaupakort%20ríkisins.pdf

Helstu atriði vátryggingarskilmála Sjóvá og MasterCard Innkaupakorts ríkisins:

Vátryggingarfjárhæðir

  • Dánarbætur vegna slyss 9.000.000
  • Örorkubætur vegna slyss 9.000.000
  • Sjúkratrygging 8.000.000*
  • Ferðarof 120.000
  • Samfylgd í neyð 160.000
  • Endurgreiðsla ferðar 360.000
  • Sjúkrahúsdagpeningar 120.00
  • Farangurstrygging 200.000**
  • Innkaupatrygging 200.000**
  • Farangurstöf 50.400
  • Ferðatöf 18.000
  • Mannránstrygging 240.000
  • Forfallatrygging 350.000*
  • Ábyrgðartrygging 40.000.000**

* eigin áhætta kr. 8.000

** eigin áhætta kr. 16.000

 Gildisákvæði

  • Vátrygging skv. eftirfarandi skilmálum gildir á ferðalögum frá heimili vátryggðs í allt að 60 samfellda ferðadaga.
  • Vátryggingin nær til korthafa MasterCard Innkaupakort ríkisins, maka, sambýlismaka og barna á framfæri til loka 22 ára aldurs og eins eða tveggja viðskiptavina eða samstarfsmanna í samfylgd korthafa í viðskiptaferðum. Skilyrt er að skýrt komi fram á ferðareikningi hverjir skulu tryggðir á kortinu (t.d. með því að þeir séu skráðir á sérstakan ferðareikning). ÞETTA ÞÝÐIR AÐ KORTHAFI VERÐUR AÐ VERA MEÐ Í FERÐINNI !!
  • Sé um ferðalag á Íslandi að ræða er vátryggingin því aðeins gild að a.m.k. helmingur ferðakostnaðar hafi verið greiddur með MasterCard Innkaupakorti ríkisins kreditkorti eða gistirými bókað fyrirfram og kortanúmer gefið upp til greiðslu. Skilyrði þessi skulu í öllum tilfellum vera uppfyllt fyrir brottför frá heimili vátryggðs.
  • Vátryggður sem fer til tímabundinna starfa til annarra landa er vátryggður skv. 1.1 en einstaklingur sem fer til náms er einungis vátryggður á útleið og heimleið.
  • Vátryggður sem býr utan Íslands er tryggður skv. grein 1.1 þegar hann ferðast til annarra landa, en ekki á ferðalögum innan dvalarlandsins.
  • Á ferðalögum á Íslandi eru slysatjón í einkabifreiðum undanskilin áhætta í vátryggingu þessari með hliðsjón af 91. og 92. grein umferðarlaga nr. 50/1987.
  • Vátryggingin gildir ekki á ferðalögum á landi eða legi utan alfaraleiða.

Færslusíða Innkaupakortsins

Færslusíða MasterCard hefur reynst frábært tæki til aukins hagræðis í bókhaldi, innkaupum og samþykktarferli fyrirtækja.

 Á færslusíðuna koma inn allar færslur sem gerðar eru með Innkaupakortinu. Þessar færslur er svo hægt að skoða og gera á þeim allar algengustu bókhaldsaðgerðir s.s. að skipta þeim upp, skrá á bókhaldslykla, skipta á deildir, samþykkja o.fl.

Stjórnendur og handhafar ofangreindra korta geta fengið aðgang að færslusíðu og aukið þannig yfirsýn yfir innkaup og útgjöld sem þeir bera ábyrgð á.

Starfsmenn geta því sjálfir fylgst með sínum kortum og gert á þeim ofangreindar aðgerðir, samþykkt færslur o.þ.h., allt eftir verklagi hvers fyrirtækis.

Fjármálastjóri eða bókari getur svo fært samþykktar færslur, rafrænt, beint í bókhaldskerfi fyrirtækisins og aukið þannig hagræði við vinnu bókhalds.

 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.