Fréttalisti

Fréttalisti
  • RK_Skilti

Nýir rammasamningar um borðbúnað og um gistingu og veitingar

26.6.2012

Ríkiskaup kynna tvo nýja rammasamninga. Nú þegar sumarið er komið og sólin skín er ekki úr vegi að fara að huga að því sem þarf að endurnýja í eldhúsinu, svona áður en allir koma tilbaka úr sumarfríum. Svo geta þreyttir og svangir ferðalangar glaðst yfir nýjum samningum um gistingu og veitingar innanlands.

Nýr rammasamningur um borðbúnað tók gildi 20. mars 2012. Samningnum var skipt upp í fjóra flokka, borðbúnað, einnota borðbúnað, eldhúsáhöld og annað.
Þannig nær samningurinn til allra stærða og gerða af glösum diskum, skálum, bollum og hnífapörum auk annara eldhúsáhalda auk einnota borðbúnaðar sem eru einnota pappa-, frauð-  og plastglös og mál, pappa- og plastdiskar og plasthnífapör.
Samið var við Ásbjörn Ólafsson ehf, Bakó Ísberg,  Fastus ehf, IKEA og Rekstrarvörur. IKEA er í fyrsta sinn í rammasamningi og er kaupendum bent á að hafa samband við fyrirtækjaþjónustuna til að tryggja að þeir njóti umsaminna kjara.

Þá tók gildi 12. júní sl. nýr rammasamningur um gistingu og veitingar innanlands. Samningurinn tryggir opinberum stofnunum afslátt og sérkjör á gistingu og veitingum innanlands fyrir starfsmenn á ferðalögum. Samningurinn kemur til móts við breytingar á reglum fjármálaráðuneytisins um greiðslur á ferðakostnaði innanlands. Í stað dagpeninga áður er nú greitt skv. reikningi. Kostnaður má þó ekki vera umfram viðmið ferðakostnaðarnefndar.
Athugið að þessi nýi samningur nær eins og áður til þjónustu við starfsmenn stofnana á ferðalögum OG NÚ EINNIG til þjónustu um stærri fundi eða árshátíðir.  Innifalið í hádegisverði og kvöldverði skal vera einn réttur með kaffi.