Nýr samningur um afsláttarkjör af flugsætum innanlands með Flugfélagi Íslands
Stofnanir með flugkort njóta afsláttar
Ríkiskaup kynna nýjan samning við Flugfélag Íslands um afsláttarkjör á flugsætum innanlands.
Allar opinberar stofnanir munu njóta að lágmarki 20% afsláttar af fullum verðum (“Forgangur”) sé greitt með Flugkorti Flugfélags Íslands. Stofnanir sem eiga veruleg viðskipti við Flugfélag Íslands munu enn fremur, í samræmi við veltu, njóta betri kjara samkvæmt eftirfarandi töflu:
Nettó heildarvelta á ári:
Minna en 10 milljónir 20%
10 – 15 milljónir 22%
15 milljónir og meira 25%
Skilyrði er að vera handhafi Flugkorts.Engin stofnun mun njóta lakari kjara en þær njóta nú þegar.
Þær stofnanir sem ekki hafa Flugkort þurfa að sækja um það á heimasíðu Flugfélags Íslands. Þær stofnanir sem nú þegar hafa Flugkort en njóta annarra kjara þurfa að hafa samband við fyrirtækjaþjónustu Flugfélags Íslands í netfangið flugkort@flugfelag.is.
Samningsnúmerið er 3378 og samningurinn gildir til 31.12.2013.
