Nýjar leitar- og björgunarþyrlur fyrir Landhelgisgæslu Íslands
Ríkiskaup f.h. innanríkisráðuneytisins hafa í samvinnu við norsk yfirvöld tilkynnt niðurstöðu forvals vegna fyrirhugaðra kaupa Landhelgisgæslu Íslands á nýrri leitar- og björgunarþyrlu. Tilkynning þar að lútandi hefur verið send þeim fyrirtækjum sem lýstu áhuga sínum í forvali til þátttöku í útboði um kaup á nýrri þyrlu.
Eftirtalin fyrirtæki hafa verið valin og metin hæf sem bjóðendur í lokuðu innkaupaferli: Agusta Westland Ltd., Eurocopter SAS og Sikorsky International Operations Inc..
Innkaupaferlið hófst þann 21. október 2011 annars vegar með tilkynningu um forval til útboðsbanka Evrópska Efnahagssvæðisins, og hins vegar auglýsingu í íslenskum fjölmiðlum . Á sama tíma tilkynnti norski þyrlukaupahópurinn, NAWSARH, fyrir hönd norska dómsmálaráðuneytisins samhliða innkaupferli, en Ísland og Noregur undirrituðu þann 30. nóvember 2007, samstarfssamning um kaup á nýjum björgunarþyrlum.
Fyrirhugað er að kaupa eina sérstaklega útbúna þyrlu til leitar- og björgunarstarfa fyrir Landhelgisgæsluna, til afhendingar á árinu 2018, með möguleika á að bæta síðar við öðrum tveimur þyrlum.
Nú er unnið að frágangi útboðsgagna. Gert ráð fyrir að útboðsgögnin verði send þátttakendum samkvæmt niðurstöðu forvals í byrjun apríl nk.

