Ríkiskaup

Fréttalisti

Fréttalisti
  • Vefuttekt2011

Úttekt á opinberum vefjum 2011 - Vefur Ríkiskaupa í 10. sæti

19.1.2012

Niðurstöður úttektar á opinberum vefjum voru kynntar á Grand hóteli 18. janúar undir yfirskriftinni: Hvað er spunnið í opinbera vefi 2011? Jafnframt var í fyrsta sinn veitt viðurkenning fyrir bestu vefina. Hlaut vefur Tryggingastofnunar viðurkenninguna besti ríkisvefurinn 2011 og vefur Akureyrarbæjar viðurkenninguna besti sveitarfélagavefurinn 2011.

Það er ánægjuefni að vefur Ríkiskaupa var í 10. sæti af vefjum ríkisstofnana með 82 stig af 100 mögulegum.

Vefur Ríkiskaupa í samanburði við meðaltöl allra flokka:

Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd
Medaltal_RK_Allir_2011

Nánar um vef Ríkiskaupa:

Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd

EinkunnRK_Undirflokkar_2011


Niðurstöðurnar úttektarinnar eru þessar í stuttu máli:

  • Opinberir vefir 2011 sýna að jafnaði framför frá úttektinni 2009. Allar gerðir stofnana hækka sig milli ára í öllum þáttum að þjónustu undanskilinni sem breytist ekki milli ára sé tekið tillit til breytinga á mælikvarða.
  • Ráðuneyti koma betur út en aðrar stofnanir í innihaldi og aðgengi. Almennt dregur þó saman með mismunandi stofnunum milli 2009 og 2011.
  • Aðgengi er sá þáttur sem að jafnaði kemur verst út hjá opinberum vefjum. Aukin áhersla er nauðsynleg á þennan þátt bæði vegna þarfa ýmissa hópa, svo sem blindra og fatlaðra, auk þess sem gott aðgengi að vef gerir hann nothæfari á fleiri gerðum vafra og tækja. Þá verður hann einnig aðgengilegri fyrir leitarvélar.
  • Stig þjónustu á opinberum vefjum er að mestu óbreytt frá 2007. Væntingar og þarfir fólks til þjónustu á vefnum hafa aukist á síðustu fimm árum og ný tækni hefur komið fram til að mæta þeim þörfum. Því er líklegt að þjónusta muni batna á næstu árum

Tölulegar upplýsingar úr úttektinni eru birtar á vef Data Market gegnum UT vefinn.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica