Hönnunarsamkeppni um byggingu fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Innanríkisráðuneytisins býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík.
Um er að ræða nýtt gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi með deild fyrir kvenfanga, aðstöðu fyrir afplánun skemmri fangelsisrefsinga og vararefsinga á Hólmsheiði í Reykjavík. Fangelsisbyggingin verður með 56 fangarýmum og u.þ.b. 3.700 m² að stærð. Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands.
Hanna skal bygginguna með vistvænar lausnir að leiðarljósi og eru keppendur hvattir til að kynna sér rit Framkvæmdasýslu ríkisins um vistvænar byggingar. Á hönnunarstigi mun byggingin fara í gegnum alþjóðlegt vottunarferli fyrir umhverfisvæna hönnun og huga skal að stefnu sem fram kemur í ritinu Menningarstefna í mannvirkjagerð, Stefna íslenskra stjórnvalda í
byggingarlist.
Veitt verða þrenn verðlaun að heildarfjárhæð 10 milljónir kr. Gert er ráð fyrir að hönnun verði lokið og útboðsgögn tilbúin fyrri hluta árs 2013 og að framkvæmdir hefjist vorið 2013 og þeim verði lokið vorið 2015.

