Ríkiskaup

Fréttalisti

Fréttalisti
  • Vigdis_medium

Hönnunarsamkeppni um byggingu Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur

22.12.2011

Framkvæmdasýsla ríkisins fyrir hönd Háskóla Íslands býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um byggingu fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.

Fyrirhuguð bygging mun rísa á horni Suðurgötu og Brynjólfsgötu og verður um 4.000 fermetrar að stærð. Markmiðið með byggingunni er tvíþætt: annars vegar að skapa aðstöðu fyrir starfsemi alþjóðlegrar tungumálamiðstöðvar, sem mun starfa undir formerkjum UNESCO, og hins vegar að að skapa fullkomna aðstöðu til kennslu, rannsókna og miðlunar þekkingar um tungumál til almennings og þekkingarsamfélagsins.

Markmið hönnunarsamkeppninnar er að fá fram tillögur um hönnun byggingar og lóðar, í samræmi við það umhverfi þar sem hún mun rísa. Gert er ráð fyrir því að hluti byggingarinnar verði opinn almenningi. Við mat á tillögum verður horft til þess að lausnir séu einfaldar og  og leiði til vandaðrar og hagkvæmrar byggingar.

HI_Logo_negativ_IS_vertVeitt verða þrenn verðlaun fyrir tillögur; fimm milljónir fyrir 1. verðlaun, þrjár milljónir fyrir 2. verðlaun og tvær milljónir fyrir 3. verðlaun. Um er að ræða opna hönnunarsamkeppni og verða tillögur metnar af dómnefnd sem skipuð er fimm fulltrúum, þrír tilnefndir af verkkaupa og 2 tilnefndir af Arkitektafélagi Íslands. Sérstakir ráðgjafar dómnefndar eru Vigdís Finnbogadóttir, fv. forseti Íslands og velgjörðarsendiherra tungumála og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands.

Gert er ráð fyrir að niðurstöður hönnunarsamkeppninnar verði kynntar 16. maí 2012 og að framkvæmdir hefjist í ársbyrjun 2012.





 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica