Áhugaverð ráðstefna „Fagmennska í innkaupum – agi skilar árangri“
Ráðstefna Skýrslutæknifélagsins þann 18. október kl. 13 – 17
SKÝ stendur fyrir þessari ráðstefnu þar sem sjónum verður beint að fagmennsku í vinnubrögðum við innkaup og velt verður upp spurningum um aðferðarfræði, staðla, framtíðarsýn og þróun innkaupamála á Íslandi.
Vaxandi kröfur birgja um gagnsæ stöðluð ferli við innkaup, kröfur fjárfesta og kauphalla um bestu mögulega nýtingu fjármuna og síðast en ekki síst að til skuldbindinga sé stofnað með siðlegum hætti. Þessi þróun er bæði sýnileg í breyttri fyrirtækjamenningu og skipuritum erlendra stórfyrirtækja.
Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem bera ábyrgð á innkaupum og fjármálum fyrirtækja, hvort sem er í einka- eða opinbera geiranum ásamt þeim sem áhuga hafa á fagmennsku í innkaupum.
Dagskrá ráðstefnunnar og skráning er á vef Skýrslutæknifélagsins.

