Ríkisendurskoðun fjallar um notkun stofnana á rammasamningum ríkisins
Í frétt á vef Ríkisendurskoðunar kemur eftirfarandi fram:
"Í nýrri ábendingu Ríkisendurskoðunar er gerð athugasemd við framkvæmd og utanumhald svonefndra rammasamninga. Um er að ræða samninga við ýmis verslunar- og þjónustufyrirtæki sem veita opinberum aðilum afslátt af verði miðað við tiltekið heildarmagn innkaupa á samningstíma. Hinn 6. október 2011 voru samtals 577 slíkir samningar í gildi við 501 fyrirtæki.
Ætlast er til að ríkisstofnanir noti ávallt þessa samninga við innkaup en í ábendingunni kemur fram að misbrestur hafi verið á því. Þá gagnrýnir Ríkisendurskoðun að erfitt sé að meta árangur samninganna því að upplýsingar um viðskipti samkvæmt þeim séu ekki skráðar í bókhaldi ríkisins. Stjórnvöld hafi hingað til byggt mat sitt á ófullkomnum og gloppóttum gögnum frá fyrirtækjunum.
Að mati Ríkisendurskoðunar er það óviðunandi og mikilvægt að fjármálaráðuneytið sjái til þess að skráning innkaupa í bókhaldi ríkisins verði þannig að unnt sé að meta framkvæmd rammasamninganna. Ráðuneytið tekur undir þessi sjónarmið stofnunarinnar og hyggst hefja vinnu við að leysa vandann."
Sjá nánar í ábendingu Ríkisendurskoðunar sem birt er á vef þeirra.

