Skrifstofan og skólinn
Fræðsluröð haustsins hefst fimmtudaginn 15. september
Fræðsluröð haustsins hefst með "Skrifstofan og skólinn" þann 15. september á Grand hótel. Kynntir verða rammasamningar um skrifstofuvöru og -pappír, húsgögn, skrifstofubúnað og prentþjónustu.
Áherslan verður á stuttar kynningar frá seljendum í prentsamningi og prentlausnum á helstu nýjungum og vistvænum sparnaðarleiðum.
Boðið verður upp á létt hádegissnarl á sýningasvæði seljenda frá kl. 12.00 - 13.00. Þar verða kynntir samningar um skrifstofuvörur og ljósritunarpappír, skrifstofu- og skólahúsgögn. Sölumenn og ráðgjafar verða á staðnum og gefa hagnýt ráð og ábendingar.
Kynningin verður haldin á Grand hóteli, fimmtudaginn 15. september frá kl. 10.00 - 13.00.Smelltu á smámyndina til að sjá nánar um dagskrána.
Þessi viðburður hefur verið vel sóttur síðastliðin ár og við hjá Ríkiskaupum hvetjum alla kaupendur til að mæta og sýna sig og sjá aðra.
Skráðu þátttöku í netfangið: skraning@rikiskaup.is

