Fréttalisti

Fréttalisti
  • Ríkiskaup Borgartúni

Sérfræðingar í umhverfis- skipulags- og byggingamálum - Nýr rammasamningur

Samið hefur verið við 82 aðila um þjónustu sérfræðinga s.s. verkfræðinga, tæknifræðinga, byggingatæknifræðinga og arkitekta

24.1.2011

Undirritaður hefur verið nýr rammasamningur um sérfræðiþjónustu í umhverfis, skipulags og byggingamálum samkvæmt 5 undirflokkum:

Flokkur 1: Skipulagsáætlanir
Flokkur 2: Byggingarmál
Flokkur 3: Umferða- og gatnamál
Flokkur 4: Umhverfismál
Flokkur 5: Veitur

Einn meginþáttur útboðsins var hæfi og hæfni bjóðenda sem geta svo haft þau áhrif að tímarammi verkefna verði styttri en ella. Sérfræðingar sem útboðið tók til, selja þjónustu þ.e. tæknisérþekkingu, nýsköpun og nýjustu tækni sem auka gæði verkefna og leiða til sparnaðar. Hæfi og hæfni fyrirtækja og einstaklinga er ráðandi þáttur þegar verið er að velja fyrirtæki.
Hinn meginþáttur útboðsins er verð. Með lýsingu á því hvaða þjónusta og atgervi er í boði og upplýsingum um verð getur kaupandinn einbeitt sér að því að velja þann aðila sem best hæfir verkinu.

Hægt er að skoða nánari upplýsingar um samninginn undir "Rammasamningar" á vef Ríkiskaupa