Ríkiskaup

Fréttalisti

Fréttalisti

Samið um frumhönnun og gerð alútboðsgagna vegna byggingar nýs Landspítala

Samið við SPITAL hópinn

27.8.2010

Samið hefur verið við SPITAL hópinn um frumhönnun og gerð alútboðsgagna vegna byggingar nýs Landspítala.

Í fréttatilkynningu sem Nýr Landspítali ohf. og Spital hópurinn sendu frá sér í dag segir m.a:

Gengið hefur verið frá samningi um frumhönnun og gerð alútboðsgagna milli SPITAL hópsins, sem bar sigur úr bítum í sumar í hönnunarsamkeppni um nýjan Landspítala, og hlutafélagsins Nýr Landspítali ohf., sem stofnað var í vor til að standa að undirbúningi og útboði á byggingu nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut.

Samkomulagið, sem undirritað var í dag að viðstöddum heilbrigðisráðherra, rektor Háskóla Íslands og forstjóra Landspítalans, tekur til deiliskipulags af Landspítalalóðinni, ásamt umhverfismati áætlana og frumhönnun nýbygginga samkvæmt vinningstillögu SPITAL í hönnunarsamkeppninni – og nær frumhönnunin til meðferðarkjarna, rannsóknastofuhúss, sjúkrahótels, háskólabygginga og bílastæðahúss. Þá tekur samkomulagið einnig til tenginga nýbygginga við eldri byggingar með undirgöngum og brúm, bæði fyrir umferð og flutninga, sem og til grunnuppbyggingar tæknikerfa samkvæmt gildandi kröfum og tenginga nýrra og eldri kerfa. Jafnframt tekur samkomulagið til gerðar arkitekta- og verkfræðiþátta í útboðsgögnum fyrir alútboð og verklýsingar sem er nægjanlega langt unnin fyrir slíkt alútboð. 

SPITAL hópnum, sem samanstendur af ASK arkitektum, Bjarna Snæbjörnssyni arkitekt, Kanon arkitektum, Medplan, Teiknistofunni Tröð, Landark, Eflu verkfræðistofu, Lagnatækni og Norconsult, fær ríflega 790 miljónir króna fyrir verkið og á að skila því í skilgreindum áföngum. Útboðsgögn vegna fyrstu framkvæmda eiga að liggja fyrir síðsumars 2011. Í framhaldinu mun SPITAL hópurinn aðstoða verkkaupa við verkefnisstjórn og hönnunarrýni samkvæmt nánara samkomulagi. Gert er ráð fyrir alútboði verkefnisins og að ríkið taki bygginguna á langtímaleigu til allt að 40 ára þegar byggingarverktaki hefur lokið umsömdu verki. Vistvæn nálgun skal höfð að leiðarljósi við frumhönnun mannvirkjanna og í allri vinnu skal miðað við að gerð verði krafa til aðalverktaka um umhverfisvottun mannvirkja við lok framkvæmda. 

Samhliða þessum samningi um frumhönnun og gerð alútboðsgagna verður einnig samið við SPITAL hópinn um hönnun undirbúningsframkvæma á svæðinu, þ.m.t. flutningur Hringbrautar, frumhönnun tengiganga milli bygginga neðanjarðar, flutningur bílastæðis og undirbúningur byggingarsvæðisins.

Sjá nánar:

www.haskolasjukrahus.is

www.spital.is

 




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica